Eowyn í 11 sæti á EM og náði aftur lágmörkum fyrir Evrópuleika

Eowyn Mamalias úr Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi endaði í 11 sæti með trissuboga kvenna landsliðinu á Evrópumeistaramótinu utandyra í Antalya Tyrklandi í vikunni. Hún endaði 47 sæti í einstaklingskeppni EM og náði lágmörkum fyrir Evrópuleika annað mótið í röð á þessu ári.

Einstaklingskeppni EM

Í undankeppni einstaklinga var Eowyn með flott skor í fyrri og seinni umferð 325 og 333 stig. Eowyn endaði í 49 sæti með 658 stig stig í undankeppni EM, 104 keppendur halda áfram á EM í útsláttarleiki. Vert er að geta að lágmarkskor fyrir Evrópuleika (European Games EOC) er 640 og þetta er annað mótið í röð á þessu ári þar sem Eowyn er yfir því skori.

Á EM var Eowyn slegin út í 56 manna leikjum þar sem hún mætti Paula Diaz Morillas frá Spáni. Sú Spænska byrjaði yfir og jók forskotið í nánast öllum umferðum þar til hún tók sigurinn 145-138 og hélt í 32 manna úrslit. Eowyn var því slegin út og endaði í 47 sæti á EM utandyra 2026 í einstaklingskeppni. Eowyn var ekki að skjóta illa, það var bara þrjú skot sem voru ekki samvinnuþýð, tökum 3 verstu örvarnar og breytum þeim í tíur og Eowyn hefði unnið leikinn, þannig að munurinn er minni en hann lítur út fyrir að vera og sú spænska átti mjög góðan leik líka.

Liðakeppni EM

Í undankeppni liða á EM skoruðu stelpurnar okkar í trissuboga kvenna aðeins 2 stigum frá Íslandsmeti landsliða kvenna með 1984 stig en metið er 1986 síðan á EM 2022. Þær jöfnuðu einnig hæsta sæti sem Ísland hefur náð í undankeppni EM frá EM 2024, 11 sæti. 24 efstu lið halda áfram á EM og okkar stelpur héldu því áfram í útsláttarkeppni EM.

Á EM sjálfu (leikjum) voru stelpurnar okkar á endanum slegnar út af Frakklandi í 16 liða úrslitum. Stelpurnar okkar voru að ströggla í leiknum við vindinn og tíma í leiknum og skutu m.a. einni ör á engum tíma á síðustu sekúndu sem lenti ekki inn á skotmarki. Á meðan að Frakkland skoraði lang hæst skorandi leik í 16 liða úrslitum, hæsta leik sinn á EM og einn hæsta leik á öllu EM gegn Íslandi. Það kom því ekki að sök að stelpurnar okkar voru ekki að finna sig þar sem að Frakkland átti það góðan leik að þær hefðu líklegast samt unnið. En Frakkland hélt því áfram í 8 liða úrslit og stelpurnar okkar enduðu í 11 sæti á EM utandyra 2026 í liðakeppni.

Nánar er fjallað um EM og aðra keppendur í þessari frétt Bogfimisambands Íslands:

Undankeppni EM gekk vel, en leikirnir á EM ekki okkar keppendum í vil að þessu sinni