Alfreð í 18 sæti á EM

Alfreð Birgisson úr Íþróttafélaginu Akri á Akureyri endaði í 18 sæti með trissuboga karla landsliðinu á Evrópumeistaramótinu utandyra í Antalya Tyrklandi í vikunni og munaði ekki miklu að þeir kæmust í 16 liða úrslit. Hann endaði 78 sæti í einstaklingskeppni EM

Í undankeppni einstaklinga var Alfreð að díla við “tæknilega örðugleika” sem orsökuðu að hann var að fá af og til örvar sem flugu langt til hliðar í 7 eða 8, en hann náði samt fínu skori og endaði í 76 sæti með 654 stig í undankeppni EM sem er ekki langt frá lágmörkum Evrópuleika sem eru 660. 104 keppendur halda áfram á EM í útsláttarleiki.

Á EM í 104 manna leikjum mætti hann Joannes Poulsen frá Færeyjum, góðum vini og nánast eins og að lenda á móti liðsfélaga, enda Færeyjingar frændur. En leikurinn byrjaði ekki vel hjá Alfreð, í fyrstu umferðinni krældi á sér “tæknilega vandamálið” og hann skaut í 7 og í sömu umferð miðaði hann og skaut óvart í 10 á skotskífu andstæðingsins, það fást víst engin stig fyrir slíkt. Utan þess var leikurinn góður hjá Alfreð, en lítið hægt að gera þegar andstæðingurinn er með 12 stiga forskot í fyrstu umferð, en Joannes átti mjög sterkan leik. Alfreð var því sleginn út og endaði því í 78 sæti á EM 2026 utandyra í einstaklingskeppni.

Í undankeppni EM í liðakeppni skoruðu strákarnir okkar í trissuboga karla liðinu 1970 stig sem jafnar núverandi landsliðsmet trissuboga karla frá Smáþjóðaleikunum 2017 og er hæsta skor sem trissuboga karla lið hefur náð á EM utandyra til dags. Þeir enduðu í 19 sæti í undankeppni EM 24 efstu lið halda áfram á EM og okkar strákar héldu því áfram í útsláttarkeppni EM.

Þar mættu strákarnir okkar Belgíu í fyrsta leik í 24 liða úrslitum. Leikurinn var æsispennandi. Belgar byrjuð með eins stigs forskot eftir fyrstu umferð 55-54. Liðin jöfnuðu aðra umferð 55-55 og Belgar leiddu því en með einu stigi í “hálfleik”. Í þriðju umferð skutu Belgar hinsvegar frábæra umferð 58 á móti 55 frá Íslandi og juku forskotið í 4 stig. En okkar menn náðu að minnka muninn í síðustu umferðinni 54-53. En það var ekki nóg og Belgar tóku því sigurinn 221-218 og héldu áfram í 16 liða úrslit. Ísland endaði í 19 sæti í trissuboga karla liða á EM utandyra 2026. Vel gert hjá okkar strákum og fúlt að Belgar náðu einni góðri umferð, en svona er það bara andstæðingarnir stóðu sig bara betur og vel gert hjá þeim líka.

Nánar er fjallað um EM og aðra keppendur í þessari frétt Bogfimisambands Íslands:

Undankeppni EM gekk vel, en leikirnir á EM ekki okkar keppendum í vil að þessu sinni