Baldur Freyr Árnason skemmti sér vel ásamt 376 íþróttamönnum frá 40 Evrópuþjóðum sem kepptu á Evrópumeistarmóti (EM) ungmenna í utandyra bogfimi sem haldið var í Róm Ítalíu 20-25 júlí.
Baldur endaði í 4 sæti í einstaklingskeppni og 2 sæti í blandaðri liðakeppni. Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingur vinnur til verðlauna á Evrópumeistaramóti ungmenna utandyra í liðakeppni.
Einstaklingskeppni:
Í undanúrslitum mættust Baldur og nýkrýndur heims- og Evrópumethafi Oliver Hicks frá Bretlandi. Þar sem sá Breski tók nokkuð öruggann sigur 6-0, þó að það munaði ekki miklu á milli þeirra í hverri lotu fyrir sig. Bretinn hélt því í gull úrslitaleikinn og Baldur í brons úrslitin.
Í brons úrslitaleiknum mættust aftur Baldur og Kristiyan ILIEV frá Búlgaríu sem var í 3 sæti í undankeppni EMU í beinu streymi frá Evrópska Bogfimisambandinu. Áhugvert er að nefna að sömu strákar mættust í brons úrslitum á EM innandyra fyrir í febrúar og þar tók Kristiyan sigurinn og bronsið. Baldur tók sér svo hlé vegna meiðsla (brjóta á sér bein í hættulegum íþróttum eins og hjólreiðum og skíðum) og var nú kominn aftur ekki best undirbúinn en ætlaði sér að taka bronsið í þetta sinn. Það gekk þó ekki eftir þar sem Baldur var ekki að finna sig í leiknum, Baldur skaut ekki illa, meira bara meh, á meðan var sá Búlgarski að skjóta nokkuð góðan leik og tók því sigurinn 6-0.
Strákarnir að bera saman hvor þeirra skelfur meira eftir brons úrslitin, báðir titruðu vel hehe
Blönduð liðakeppni (Mixed team 1kk+1kvk):
Í mixed team (blandaðri liðakeppni, eða “parakeppni”) voru Lóa og Baldur sem skipuðu lið Íslands. Þar endaði Íslenska liðið í 3 sæti í undankeppni EMU og mættu því aftur Búlgaríu í undanúrslitum.
Liðin kepptu í gull úrslitum á Evrópubikarmótinu fyrr á árinu, en þá leysti Ragnar Smári af í Íslenska liðinu þar sem Baldur hafði nýlega brotið á sér hendina í hjólreiðum (bogfimifólk slasar sig bara í öðrum íþróttum sem eru allar hættulegar í samanburði við bogfimi). Á Evrópubikarmótinu vann Búlgaría leikinn og Evrópubikarmótið, en nú með sterkasta lið Íslands komið inn aftur á EMU og útlit fyrir að Ísland gæti tekið mögulega tekið undanúrslitin og jafnvel titilinn.
Ísland byrjaði á að taka fyrstu lotu undanúrslita á EMU mjög örugglega 33-22 og staðan því 2-0. Búlgaría náði annarri lotu 30-26 og jafnaði leikinn 2-2. Ísland náði þriðju lotunni aftur mjög örugglega 35-28 og staðan því 4-2 fyrir Íslandi og aðeins ein lota eftir. Ísland og Búlgaría jöfnuðu síðustu lotuna 31-31 og deildu því stigunum og leikurinn endaði því 5-3 sigur fyrir Ísland sem hélt því áfram í gull úrslitaleikinn.
Í gull úrslitum mættust Ísland og lið Bretlands, sem var efst í undankeppni EMU og slóu heimsmetið og Evrópumetið í Berboga mixed team U21 og í Meistaraflokki!!!! Met sem Ísland átti árið 2024, Svíþjóð sló svo 2025 og Bretar tóku það svo núna 2026. Það var því gert ráð fyrir spennandi leik, þó að Bretar væru taldir sigurstranglegri en Íslendingar, enda eiga liðsmenn Bretlands öll heims- og Evrópumetin í dag í blandaðri liðakeppni.
Íslandi gekk illa að koma sér á strik í gull úrslitaleiknum og vindurinn á æfingasvæðinu sem snéri öfugt við æfingavöllinn gerði það af verkum að þau ströggluðu við að finna rétta stillingu og mið. Þannig að Bretar tóku í raun óvænt öruggann 6-0 sigur í leiknum í 3 lotum 33-26, 32-28, 36-17. Bretar tóku því Evrópumeistaratitilinn og Ísland tók silfrið. Sem er þó ekki lélegt þar sem þetta eru fyrstu liðaverðlaun sem Ísland vinnur til á Evrópumeistaramóti utandyra, þó að gullið og titilinn hefði að sjálfsögðu verið skemmtilegra 😉 (Ísland hefur tekið verðlaun áður á EMU innandyra og EMU í víðavangsbogfimi, en ekki EMU utandyra)
Nánari upplýsingar um EM ungmenna er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:
Ísland með verðlaun í fyrsta sinn á EM ungmenna utandyra, bæði silfur og brons í hús











