Marín Aníta Hilmarsdóttir úr Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi endaði í 20 sæti með sveigboga kvenna landsliðinu á Evrópumeistaramótinu utandyra í Antalya Tyrklandi í vikunni. Hún endaði 64 sæti í einstaklingskeppni EM og náði lágmarksskorum fyrir Evrópuleikana 2027 akkúrat.
Í undankeppni einstaklinga var Marín sátt við skorið sitt í fyrri umferðinni 304 stig, þar sem að eitt af markmiðum hennar á mótinu var að ná lágmarksviðmiðum fyrir Evrópuleikana 2027 (600) sem EM er einnig fyrsta undankeppnismót fyrir og fyrir Ólympíuleikana 2028 (620). Í síðustu lotu seinni umferðar undankeppni EM þurfti Marín aðeins 45 stig til að skora yfir 600, sem ætti að vera auðvelt þar sem að sjaldgæft er að Marín skori svo lágt. En þar virtust koma einhverjar taugar inn og hún skaut röð af sexum og var eiginlega búin að gefa upp á bátinn að ná 600 þar sem hún þurfti 10 í síðasta skotinu sínu. Sem hún náði, þó að hún hafi ekki áttað sig á því í kíkinum á skotlínunni þá var ánægja þegar komið var til baka eftir að búið var að skora. Marín endaði í 63 sæti með 600 stig í undankeppni EM, 104 keppendur halda áfram á EM í útsláttarleiki.
Á EM í fyrsta leik í 104 manna leikjum mætti hún Balzhin Dorzhieva frá Rús… hehem hlutlausum íþróttamönnum (Individual Neutral Athletes). Þar náði sú hlutlausa sigrinum 6-0 og sló Marín út af EM. 25-27, 26-27, 24-27, allt loturnar með littlum mun og frammistaða Marínar var fín og innan eðlilegra marka, hin átti bara betri leik, sem gerist og er bara partur af leiknum. Marín endaði því í 64 sæti á EM 2026 utandyra.
Í undankeppni EM í liðakeppni skoruðu stelpurnar okkar 1606 stig og enduðu í 20 sæti í undankeppni. 24 efstu lið halda áfram á EM og okkar stelpur héldu því áfram í útsláttarkeppni EM. Þar mættu stelpurnar okkar Finnlandi í fyrsta leik í 24 liða úrslitum. Þar tóku Finnar sigurinn 6-0 og héldu áfram í 16 liða úrslit. Íslenska liði því slegið út (útsláttarkeppni) og enduðu í 20 sæti á EM. Stelpurnar okkar voru að skjóta fínt, en “úps” örvar í hverri umferð sem gerir sigur erfiðann.
Nánar er fjallað um EM og aðra keppendur í þessari frétt Bogfimisambands Íslands:
Undankeppni EM gekk vel, en leikirnir á EM ekki okkar keppendum í vil að þessu sinni






