Dagur Örn í 18 sæti á EM

Dagur Örn Fannarsson úr Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi endaði í 18 sæti með trissuboga karla landsliðinu á Evrópumeistaramótinu utandyra í Antalya Tyrklandi í vikunni og munaði ekki miklu að þeir kæmust í 16 liða úrslit. Hann endaði 76 sæti í einstaklingskeppni EM

Í undankeppni einstaklinga var Dagur ekki sáttur með fyrri umferðina 309 stig, en sáttur við seinni umferð undankeppni sem var 331 stig. Dagur endaði í 78 sæti með 640 stig í undankeppni EM, 104 keppendur halda áfram á EM í útsláttarleiki.

Á EM í 104 manna leikjum mætti hann Stepan Butrym frá Rús… hehem hlutlausum íþróttamönnum (Individual Neutral Athletes). Þar náði sá hlutlausi sigrinum 144-136 og sló Dag út af EM. Dagur endaði því í 76 sæti á EM 2026 utandyra í einstaklingskeppni.

Í undankeppni EM í liðakeppni skoruðu strákarnir okkar í trissuboga karla liðinu 1970 stig sem jafnar núverandi landsliðsmet trissuboga karla frá Smáþjóðaleikunum 2017 og er hæsta skor sem trissuboga karla lið hefur náð á EM utandyra til dags. Þeir enduðu í 19 sæti í undankeppni EM 24 efstu lið halda áfram á EM og okkar strákar héldu því áfram í útsláttarkeppni EM.

Þar mættu strákarnir okkar Belgíu í fyrsta leik í 24 liða úrslitum. Leikurinn var æsispennandi. Belgar byrjuð með eins stigs forskot eftir fyrstu umferð 55-54. Liðin jöfnuðu aðra umferð 55-55 og Belgar leiddu því en með einu stigi í “hálfleik”. Í þriðju umferð skutu Belgar hinsvegar frábæra umferð 58 á móti 55 frá Íslandi og juku forskotið í 4 stig. En okkar menn náðu að minnka muninn í síðustu umferðinni 54-53. En það var ekki nóg og Belgar tóku því sigurinn 221-218 og héldu áfram í 16 liða úrslit. Ísland endaði í 19 sæti í trissuboga karla liða á EM utandyra 2026. Vel gert hjá okkar strákum og fúlt að Belgar náðu einni góðri umferð, en svona er það bara andstæðingarnir stóðu sig bara betur og vel gert hjá þeim líka.

Nánar er fjallað um EM og aðra keppendur í þessari frétt Bogfimisambands Íslands:

Undankeppni EM gekk vel, en leikirnir á EM ekki okkar keppendum í vil að þessu sinni