Marín Aníta Hilmardóttir úr BF Boganum í Kópavogi braut 7 titla sigurröð Valgerðar E. Hjaltested þegar hún vann (loksins) aftur Íslandsmeistaratitil kvenna á Íslandsmeistaramótinu utandyra 21 júní síðastliðinn í Fagralundi Kópavogi.
Ásamt því vann Marín Íslandsmeistaratitil félagsliða, sló félagsliðamet með félagsliði sínu, sló einstaklings Íslandsmetið í sveigboga kvenna með 4 stigum með 620 skori og náði lágmarksskorviðmiðum Ólympíuleika 2028. Ansi góður dagur hjá Marín enda var hún hæst ánægð með árangurinn.
Undankeppni ÍM sveigboga á sunnudegi:
Marín stóð sig frábærlega í undankeppni ÍM og setti nýtt Íslandsmet 620 stig sem bætti 616 Íslandsmet hennar frá árinu 2021. 620 er einnig lágmarkskor til að geta unnið þátttökurétt á Ólympíuleika 2028 (ný hækkað úr 610 í 620). Það þýðir ekki að hún muni fá þátttökurétt á Ólympíuleikana þar sem hún þarf líka að vinna sér sæti á leikana. Marín var efst í undankeppni ÍM bæði um kvenna og óháð kyni titlana.
Keppni um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn sveigboga kvenna:
Marín var í raun óstöðvandi í útsláttarleikjum sveigboga kvenna og tapaði ekki einu stigi í 8 manna úrslitum, undanúrslitum né gull úrslitum og tók Íslandsmeistaratitilinn örugglega.
Í gull úrslitaleiknum mætti hún eins og lesendur eru vanir liðsfélaga sínum Valgerði Einarsdóttir Hjaltested sem hefur unnið síðustu 3 Íslandsmeistaratitla kvenna í röð utandyra og síðustu 4 Íslandsmeistaratitla í röð innandyra. Valgerður braut lengstu sigurröð Íslandsmeistaratitla sveigboga (5 titla sigurröð Marínar á árunum 2020-2022) þegar hún vann utandyra titilinn í fyrra.
Marín hefur alltaf endað undir í úrslitaleiknum og alltaf gegn Valgerði, þrátt fyrir að vera almennt að skora hærra. Fólk var byrjað að kalla þetta “Völu álögin”. En þau álög eru greinilega brotin þar sem Marín vann Íslandsmeistaratitil kvenna örugglega 6-0 í þetta sinn á móti Valgerði og braut lengstu sigurröð Íslandsmeistaratitla í sveigboga, 7 titlar í röð sem Valgerður setti.
Eva Kristín Sólmundsdóttir úr ÍFA Akureyri vann bronsið í úrslitaleik gegn Astrid Daxböck úr BFB Kópavogi.
Keppni um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn sveigboga óháð kyni:
Marín sat hjá í 16 manna úrslitum í keppni um titilinn óháð kyni. Hún vann svo leik sinn í 8 manna úrslitum örugglega 6-0, en mætti svo eilífa keppinaut sínum og liðsfélaga Valgerði E. Hjaltested í undan úrslitum og úr varð spennandi leikur. Marín vann fyrstu tvær loturnar 25-21 og 28-27 og leiddi því 4-0 í leiknum. Stelpurnar jöfnuð þriðju lotu 24-24 og staðan 5-1 og Vala varð að vinna næstu tvær lotur til að jafna leikinn og knýja fram bráðabana, sem hún gerði 27-24 í fjórðu lotu og 27-26 í síðustu lotu og staðan því 5-5 jafntefli og því þurfti bráðabana til að ákvarða hvor þeirra myndi keppa um gullið og hver keppti um bronsið. Þar tók Marín sigurinn í þetta sinn með minnsta mun 9 á móti 8. Marín hélt því í gull úrslitaleikinn.
Í úrslitaleiknum mættust Marín og Ari Emin Björk úr Íþróttafélaginu Akri á Akureyri. Ari tók fyrstu lotuna 26-22 og 2-0 forystu í leiknum, og jók svo forskotið 4-0 í annarri lotu með 28-26 sigri í lotunni. Marín vann þriðju lotu 25-23 og staðan 4-2. Þau jöfnuðu fjórðu lotu 25-25 og staðan því 5-3. Marín þurfti því að vinna síðustu lotuna til að jafna leikinn og knýja fram bráðabana aftur, en Ari leyfði því ekki að gerast og tók glæsilega 29 lotu á móti 26 frá Marín. Ari tók því sigurinn 7-3 og tók sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil óháð kyni og með því braut hann þriggja ára sigurröð Marínar um titilinn óháð kyni. Marín tók silfrið í keppni óháð kyni.
Valgerður Hjaltested BFB Kópavogi tók bronsið í úrslitaleik gegn Evu Kristínu Sólmundsdóttir úr ÍFA Akureyri.
Keppni um Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni Sveigboga:
Aðeins tvo efstu lið í undankeppni ÍM halda áfram í útsláttarleiki í félagsliða og fara því beint í gull úrslitaleik. Þar mættust tvö efstu lið Bogfimifélagsins Bogans í Kópavogi. Þar sem að aðal lið Bogans vann öruggann sigur á liði 2 6-0 og liðsmennirnir Marín, Valgerður og Baldur því titilinn og Astrid, Jóhann og Ragnar tóku silfrið.
Eilífir keppinauta og liðsfélagar
Bardaginn á milli Marínar og Valgerðar um Íslandsmeistaratitlana er búinn að vera rosalegur á þessum áratug.
- 2021 Utandyra Marín vann, Vala var ekki andstæðingurinn Þetta er síðasta ÍM sem Vala og Marín kepptu ekki um gullið á ÍM.
- 2021 Innandyra Marín vann Völu 6-2 (107-104)
- 2022 Innandyra Marín vann Völu 6-5 (138-133) – 5-5 jafntefli bráðabani sem Marín vann 10-8
- 2022 Utandyra Marín vann Völu 7-3 (115-105)
- 2023 Innandyra Vala vann Marín 6-4 (130-130)
- 2023 Utandyra Vala vann Marín 6-0 (77-69)
- 2024 Innandyra Vala vann Marín 6-4 (137-136)
- 2024 Utandyra Vala vann Marín 6-5 (109-99) – 5-5 jafntefli bráðabani sem Vala vann 9-8
- 2025 Innandyra Vala vann Marín 6-4 (139-134)
- 2025 Utandyra Vala vann Marín 6-2 (89-95)
- 2026 Innandyra Vala vann Marín 6-5 (138-137) 5-5 jafntefli bráðabani Vala vann 10-9
- 2026 Utandyra (núna) Marín vann Völu 6-0 (83-77)
Að sjálfsögðu á ÍM núna í keppni um titilinn óháð kyni í undanúrslitum enduðu Marín og Vala líka í jafntefli 5-5 og bráðabana sem Marín vann 9-8. Af því að hvernig gæti það ekki verið tæpt á milli þeirra aftur hehe. Það er enginn vafi á því að þær eiga Íslandsmetið í bráðabönum gegn sama andstæðingi og bráðabönum yfir höfuð, þó að engar tölur séu haldnar um slíkt, þá er munurinn svo mikill að það þarf ekki að telja það.
Svo vinna þær saman í landsliðum t.d. vann Valgerður þátttökurétt á Evrópuleikana 2023 fyrir Ísland, en Marín notaði þátttökuréttinn af því að Marín hafði náð lágmarksskorum fyrir leikana en vann ekki þátttökurétt. En Valgerður vann þátttökurétt en hafði ekki náð lágmarksskorum.
Samantekt af árangri Marínar á ÍM 2026 utandyra:
- Íslandsmeistari sveigboga kvenna – Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn Kópavogi
- Silfur Valgerður E. Hjaltested BFB
- Brons Eva Kristín Sólmundsdóttir ÍFA
- Íslandsmeistari sveigboga óháð kyni – Ari Emin Björk – ÍF Akur Akureyri
- Silfur Marín Aníta Hilmarsdóttir
- Brons Valgerður E. Hjaltested
- Íslandsmeistari sveigboga félagsliða – Lið Bogfimifélagsins Bogans í Kópavogi
- Liðsmenn
- Marín Aníta Hilmarsdóttir
- Valgerður E. Hjaltested
- Baldur Freyr Árnason
- Liðsmenn
- Marín Aníta Hilmarsdóttir BFB – Íslandsmet Sveigboga kvenna meistaraflokkur 620 stig – Metið var áður 616 og Marín átti það sjálf frá ÍM utandyra 2021 (og það er enn U21 Íslandsmetið).
- 620 er einnig lágmarksskor sem einstaklingur þarf að ná til að geta unnið þátttökurétt á Ólympíuleika 2028 í sveigboga kvenna. Skorið var hækkað úr 610 í 620 stig milli ÓL24 og ÓL28. En það er einnig búið að fækka fjölda þátttökurétta sem eru í boði í sveigboga til að koma trissuboga að á ÓL þannig að erfiðleikastig þess að vinna þátttökurétt á ÓL í sveigboga hefur því hækkað gífurlega. En Marín er einni Íslenski keppandinn sem hefur náð þeim viðmiðum í sveigboga
- Bogfimifélagið Boginn – Íslandsmet Sveigboga félagsliðakeppni meistaraflokkur 1668 stig – Metið var áður 1592 stig frá 2024 og Boginn átti það met
- Liðsmenn
- Marín Aníta Hilmarsdóttir
- Valgerður E. Hjaltested
- Baldur Freyr Árnason
- Liðsmenn
Mögulegt er að sjá nánari upplýsingar um ÍM í fréttum á bogfimi.is







