Elías Áki Hjaltason úr BF Boganum í Kópavogi keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og endaði í 16 sæti í einstaklingskeppni og 8 sæti í liðakeppni.
Útsláttarleikir einstaklinga
Elías endaði í 19 sæti í undankeppni NUM í sveigboga U18 karla með 363 stig.
Í 32 manna úrslitum mættust Elías og Robert Svensson frá Svíþjóð og úr varð spennandi leikur.
Sænski tók fyrstu lotu 23-19, strákarnir jöfnuðu aðra lotu 11-11 og Elías tók þriðju lotu 22-19 og staðan því 3-3 í leiknum (2 stig fyrir að vinna lotu 1 stig fyrir að jafna). Elías tók fjórðu lotuna 21-20 og staðan 5-3 og aðeins ein lota eftir ef leiknum, ef strákarnir jafna lotuna eða Elías vinnur þá sigrar hann leikinn, ef Sænski vinnur þá endar leikurinn jafn og það þarf bráðabana til að ákvarða sigurvegara. Svo varð raunin Sænski tók lotuna 23-15 og leikurinn endaði í jafntefli 5-5, því þurfti bráðabana (ein ör nær miðju vinnur) til að ákvarða sigurvegara og hver héldi áfram í 16 manna úrslit. Þar náði Elías sigrinum 4-0 og hélt því í 16 manna úrslit
Í 16 manna úrslitum mættust Elías og Niila Kauppi frá Finnlandi sem var í þriðja sæti undankeppni NM (Elías var í 19 sæti). Finninn reyndist vera of hátt fjall að klífa fyrir Elías og hann tapaði fyrstu þrem lotum í röð og því leiknum 6-0 og Elías endaði því í 16 sæti einstaklinga á NM ungmenna
Útsláttarleikir liða
Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna og Elías endaði því með Axel Leví Marteinsson frá Ísafirði í öðru liði Íslands (hvert land má skipa mörgum liðum á NM). Þó að þeir hafi verið “annað liðið” frá Íslandi og verið í 22 sæti af 26 liðum í undankeppni þá sá það ekki á frammistöðunni þeirra.
Í fyrsta leik liða (24 liða úrslit) mættu þeir liði 3 frá Danmörku sem var í 11 sæti í undankeppni NM. Strákarnir töpuðu fyrstu lotunni 31-17, en eftir það kviknaði í strákunum og þeir unnu næstu 3 lotur í röð 33-24, 30-27, 28-20 og tóku því sigurinn í leiknum 6-2 og héldu áfram í 16 liða úrslit.
Í 16 liða úrslitum mættu strákarnir okkar liði 2 frá Svíþjóð sem var í 6 sæti í undankeppni NM og það var ansi spennandi leikur. Svíjarnir tóku fyrstu lotuna 33-26 og 2-0 forystu. Strákarnir okkar tóku lotu 2 31-27 og jöfnuðu leikinn 2-2. Svíjarnir tóku svo þriðju lotu 30-17 og staðan 4-2 (það lið sem er fyrr að ná 5 stigum vinnur leikinn, 4 lotu leikur, 2 stig fyrir að vinna lotu, 1 stig fyrir að jafna lotu). Strákarnir þurftu því nauðsynlega að vinna síðustu lotuna til að jafna leikinn og knýja fram bráðabana, og þeir náðu því með 25-23 lotu og jöfnuðu leikinn 4-4. Bráðabani (ein ör per íþróttamann, liðið sem skorar hærra vinnur) myndi því ákvarða hver væri í 8 liða úrslit. Þar komu strákarnir aftur á óvart og skutu 7 og 6 stig á móti 9 og 1 stig frá Svíþjóð 13-10, strákarnir unnu bráðabanann og héldu því í 8 liða úrslit.
Alveg ótrúlegur árangur hjá strákunum okkar að ná þetta langt umfram gengi þeirra í undankeppni gegn sterkari andstæðingum í hvert sinn. Eitthvað sem enginn hefði spáð fyrir mótið.
Í 8 manna úrslitum mættu strákarnir okkar liði 1 frá Finnlandi sem var í 3 sæti í undankeppni NM. Finnar tóku fyrstu lotu 32-25 og aðra lotu 32-19 og þriðju lotu 35-24 og tóku því sigurinn 6-0 og strákarnir okkar enduðu í 8 sæti í liðakeppni á NM ungmenna.
Samt sem áður vel af sér vikið og líklega “underdog” moment mótsins þegar að í stærsta flokkum á NM ungmenna (26 lið) liðið sem var í 22 sæti í undankeppni vann sig upp í 8 liða úrslit meðal þeirra bestu og enduðu hærra en aðallið Íslands sem var slegið út í 16 manna úrslitum. Þeir geta verið mjög stoltir af þessum árangri
Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.
Áfram Ísland!!



