Maria Kozak með tvö silfur á Norðurlandameistaramóti ungmenna

Maria Kozak úr SkotÍsa Ísafirði keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og tók silfur verðlaun í bæði einstaklingskeppni og liðakeppni á mótinu.

Útsláttarleikir einstaklinga

Maria Kozak endaði í 2 sæti í undankeppni NM ungmenna með 383 stig í sveigboga kvenna U21 Open. Maria sat því hjá í 8 manna úrslitum og hélt beint í undanúrslit

(Útsláttarleikur einstaklinga = 5 lotur, 2 stig fyrir að vinna lotu, 1 stig fyrir að jafna, sá sem er fyrr að ná 6 stigum vinnur af því að það eru 10 stig í pottinum (5lotur*2stig), ef leikurinn endar í jafntefli 5-5 þá er bráðabani, skotið einni ör og sá sem hittir nær miðju vinnur)

Í undanúrslitum mættust Karólína Karlsdóttir og Maria Kozak sem báðar frá Íslandi. Maria tók fyrstu lotuna 16-14, Karó tók aðra lotu 22-18 og þriðju 23-18 og leiddi því leikinn 4-2. Maria tók fjórðu lotu naumlega 18-17 og staðan jöfn 4-4 og aðeins ein lota eftir. Sigurvegarinn héldi í gull úrslit og sá sem tapaði héldi í brons úrslit. Þar tók Maria sigurinn í lotunni 20-14 og því sigurinn í leiknum 6-4 og hélt í gull úrslit. Karó hélt í brons úrslit sem hún vann.

Í gull úrslitum mættust Brianna Tot frá Danmörku sem var efst í undankeppni NM ungmenna. Sú Danska tók fyrstu lotuna 22-15 og svo aðra lotu 22-14. Maria var ekki langt frá því að ná þriðju lotu en sú Danska tóka hana líka 23-21 og leiknum því lokið 6-0 sú Danska tók gullið og Maria tók því silfrið á NM ungmenna 2026.

Útsláttarleikir liða

Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna. Karólína Karlsdóttir úr BF Boganum og Maria Kozak úr SkotÍs Ísafirði enduðu saman í liði sem lið 1 frá Íslandi sem var í 2 sæti í undankeppni NM (hvert land má skipa mörgum liðum á NM).

(Útsláttarleikur liða = 4 lotur, 2 stig fyrir að vinna lotu, 1 stig fyrir að jafna, sá sem er fyrr að ná 5 stigum vinnur af því að það eru 8 stig í pottinum (4lotur*2stig), ef leikurinn endar í jafntefli 4-4 þá er bráðabani, allir liðsmenn skjóta einni ör og liðið sem er með hæsta skorið vinnur)

Í undanúrslitum mættu okkar krakkar í liði Íslands liði Noregs og úr varð harður bardagi. Ísland tók fyrstu lotu 28-23 og því 2-0 forystu í leiknum. Norðmenn svöruðu og tóku aðra lotu 22-20, liðin jöfnuðu svo þriðju lotu 23-23 og staðan í leiknum því 3-3. Ein lota eftir sem myndi ákvarða hver keppti um gull og hver keppti um brons. Lotan endaði 30-21 fyrir Íslandi og Ísland tók því sigurinn 5-3 í leiknum og hélt áfram í gull úrslit. Norðmenn fóru í brons úrslit þar sem þeir unnu í jafntefli og bráðabana.

Í gull úrslitum mættust aðallið Íslands og Danmerkur. Danmörk tók fyrstu lotu leiksins 29-24 og aðra lotu leiksins 34-20 og þriðju lotu leiksins 31-23 og því sigurinn örugglega 6-0 og Norðurlandameistaratitilinn. Krakkarnir okkar tóku því silfrið í liðakeppni á NUM 2026

Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.

Ragnar, Þórdís og Lóa skara fram úr – Fjórir Norðurlandameistaratitlar og tvö Norðurlandamet á NM ungmenna

Áfram Ísland!!