Karólína Karlsdóttir (Karó) úr BF Boganum í Kópavogi keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og tók brons í einstaklingskeppni og silfur í liðakeppni á sínu fyrsta NUM.
Útsláttarleikir einstaklinga
Þetta var fyrsta landsliðsverkefni Karó og hún stóð sig ágætlega í undankeppni NM ungmenna miðað við aldur of fyrri störf og endaði í 3 sæti með 326 stig í sveigboga kvenna U21 Open.
(Útsláttarleikur einstaklinga = 5 lotur, 2 stig fyrir að vinna lotu, 1 stig fyrir að jafna, sá sem er fyrr að ná 6 stigum vinnur af því að það eru 10 stig í pottinum (5lotur*2stig), ef leikurinn endar í jafntefli 5-5 þá er bráðabani, skotið einni ör og sá sem hittir nær miðju vinnur)
Í 8 manna úrslitum mættust Karó og Salka Þórhallsdóttir frá Íslandi sem var í 6 sæti í undankeppni NUM og úr varð spennandi leikur. Karó tók fyrstu lotu 15-10, Salka tók aðra lotu 17-14, Karó tók þriðju lotu 16-11 og Salka tók fjórðu lotu 14-10 og staðan í leiknum jöfn 4-4 eftir að skiptast á að taka loturnar. Aðeins ein lota eftir sigurvegarinn myndi halda í undanúrslit og keppa til verðlauna, ef lotan endaði jöfn þyrfti bráðabana til að ákvarða sigurvegara (ein ör nær miðju vinnur). En svo varð ekki í þessu tilfelli, Karó tók sigurinn 19-13 í síðustu lotunni og hélt því áfram í undanúrslit á meðan Salka var slegin út og endaði í 6 sæti á NUM 2026.
Í undanúrslitum mættust Karólína Karlsdóttir og Maria Kozak sem báðar frá Íslandi. Maria tók fyrstu lotuna 16-14, Karó tók aðra lotu 22-18 og þriðju 23-18 og leiddi því leikinn 4-2. Maria tók fjórðu lotu naumlega 18-17 og staðan jöfn 4-4 og aðeins ein lota eftir. Sigurvegarinn héldi í gull úrslit og sá sem tapaði héldi í brons úrslit. Þar tók Maria sigurinn í lotunni 20-14 og því sigurinn í leiknum 6-4 og hélt í gull úrslit. Karó hélt í brons úrslit.
Í brons úrslitum mættust Karó og Nora Yasir Mohammed Mahmoud Khalil frá Noregi (ekkert smá nafn þar á ferð) sem var í 5 sæti í undankeppni NM ungmenna. Karó vann fyrstu lotuna 20-11 og aðra lotu 15-9 og leiddi því leikinn 4-0. En sú Norska náði sér á strik og vann þriðju lotu 16-12 og stelpurnar jöfnuðu fjórðu lotu 15-15. Staðan var því 5-3 fyrir Karó og aðeins ein lota eftir af leiknum, ef Karó tapaði lotunni þá myndi leikurinn enda í jafntefli og þyrfti bráðabana til að ákvarða sigurvegara, það myndi því duga Karó að jafna síðustu lotuna til að taka brons verðlaunin á NM ungmenna. Karó skaut 15 og sú Norska skaut 15, jafntefli í lotuni þær deildu stigunum og leiknum lauk 6-4 með sigri Karó sem tók því bronsið heim til Íslands á sínu fyrsta Norðurlandameistaramóti ungmenna.
Útsláttarleikir liða
Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna. Karólína Karlsdóttir úr BF Boganum og Maria Kozak úr SkotÍs Ísafirði enduðu saman í liði sem lið 1 frá Íslandi sem var í 2 sæti í undankeppni NM (hvert land má skipa mörgum liðum á NM).
(Útsláttarleikur liða = 4 lotur, 2 stig fyrir að vinna lotu, 1 stig fyrir að jafna, sá sem er fyrr að ná 5 stigum vinnur af því að það eru 8 stig í pottinum (4lotur*2stig), ef leikurinn endar í jafntefli 4-4 þá er bráðabani, allir liðsmenn skjóta einni ör og liðið sem er með hæsta skorið vinnur)
Í undanúrslitum mættu okkar krakkar í liði Íslands liði Noregs og úr varð harður bardagi. Ísland tók fyrstu lotu 28-23 og því 2-0 forystu í leiknum. Norðmenn svöruðu og tóku aðra lotu 22-20, liðin jöfnuðu svo þriðju lotu 23-23 og staðan í leiknum því 3-3. Ein lota eftir sem myndi ákvarða hver keppti um gull og hver keppti um brons. Lotan endaði 30-21 fyrir Íslandi og Ísland tók því sigurinn 5-3 í leiknum og hélt áfram í gull úrslit. Norðmenn fóru í brons úrslit þar sem þeir unnu í jafntefli og bráðabana.
Í gull úrslitum mættust aðallið Íslands og Danmerkur. Danmörk tók fyrstu lotu leiksins 29-24 og aðra lotu leiksins 34-20 og þriðju lotu leiksins 31-23 og því sigurinn örugglega 6-0 og Norðurlandameistaratitilinn. Krakkarnir okkar tóku því silfrið í liðakeppni á NUM 2026
Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.
Áfram Ísland!!


