Elísabet Fjóla á EM ungmenna að keppa um brons

Elísabet Fjóla Björnsdóttir skemmti sér vel ásamt 376 íþróttamönnum frá 40 Evrópuþjóðum sem kepptu á Evrópumeistarmóti (EM) ungmenna í utandyra bogfimi sem haldið var í Róm Ítalíu 20-25 júlí.

Fjóla endaði í 21 sæti í einstaklingskeppni og 4 sæti í liðakeppni og 7 sæti í blandaðri liðakeppni. Hún sló einnig landsliðsmetið tvisvar með blandaða liði Íslands.

Einstaklingskeppni:

Fjóla endaði í 19 sæti í undankeppni einstaklinga með skorið 597 og mætti því Ginevra Pardini frá Ítalíu í 32 manna úrslitum, sem var í 14 sæti undankeppni EMU. Þar reyndist Ítalska sterkari og sló Fjólu út 133-109 og Fjóla endaði því í 21 sæti í einstaklingskeppni.

Liðakeppni:

Í trissuboga U18 liðakeppni enduðu stelpurnar okkar (Eydís/Sóldís/Fjóla) í 4 sæti í undankeppni EMU með 1740 stig sem er ekki langt frá landsliðsmetinu sem er 1752 stig.

Stelpurnar okkar töpuðu undanúrslitaleiknum gegn sterkasta liðið mótsins Tyrklandi 228-191 og fóru því í brons úrslitaleikinn.

Í brons úrslitaleiknum mættu stelpurnar okkar liði Rús… hehemm, liði “hlutlausra íþróttamanna” sem voru í öðru sæti í undankeppni mótsins, en höfðu tapað óvænt gegn Ítalíu í undanúrslitum. Þar tók “Hlutlausa einstaklinga liðið” sigurinn gegn Íslandi 227-201. Tyrkland tók gullið á móti Ítalíu 224-216 og stelpurnar okkar enduðu því í 4 sæti.

Ísland vakti mikla athygli á mótinu, bæði sem liðið sem skemmtir sér mest í úrslitum og sem “outlier-inn” í úrslitaleikjum liða, sem er venjulega bardagi milli fjölmennustu og stærstu þjóða Evrópu þar sem talent pool-ið er mun dýpra.

Blönduð liðakeppni (Mixed team 1kk+1kvk):

Í mixed team (blandaðri liðakeppni, eða “parakeppni”) voru Magnús og Fjóla efstu keppendur Íslands í undankeppni einstaklinga í hvoru kyni og mynduðu því liðið. Þar endaði Íslenska liðið í 10 sæti í undankeppni EMU með skorið 1244 sem er ekki langt frá landsliðsmetinu sem er 1264 stig sem er mjög gott miðað við að töluverður vindur var í undankeppni EMU.

Krakkarnir okkar mættu því liði Spánar í 16 liða úrslitum, sem var í 7 sæti í undankeppni EMU.

Spánn var talið sigurstranglegra liðið, en Ísland byrjaði með 3 stiga forskot eftir fyrstu umferð leiksins 37-34. Ísland og Spánn jöfnuðu aðra umferð 37-37 og Spánverjar náðu að saxa 1 stig af forskoti Íslands í þriðju umferð 39-38 og staðan í leiknum því 112-110 fyrir Íslandi og aðeins ein umferð eftir. Þar jöfnuðu liðin umferðina aftur 36-36 og lokastaða leiksins því 148-146 sigur fyrir Ísland. Spánn endaði því í 10 sæti og Ísland hélt áfram í 8 liða úrslit

Í 8 liða úrslitum mætti Ísland sterkasta liði mótsins Tyrklandi. Þó að munurinn í flestum umferðum hafi ekki verið mikill og Íslenska parið að skora vel í 3 af 4 umferðum, þá skoruðu Tyrkir hæsta leik allra þjóða í 8 manna úrslitum á móti Íslandi og tóku því sigurinn með 8 stigum 153-145. Tyrkir tóku síðar Evrópumeistaratitilinn í mixed team á mótinu, Ísland endaði í 7 sæti.

Samt vel gert hjá okkar krökkum sem slóu Íslandsmetið í útsláttarleik liða tvisvar. Metið var áður 140 stig og þau skoruð tvisvar yfir því 148 og 145 og ekki í bestu veðuraðstæðum.

Nánari upplýsingar um EM ungmenna er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Ísland með verðlaun í fyrsta sinn á EM ungmenna utandyra, bæði silfur og brons í hús