Magnús Darri Markússon úr BF Boganum í Kópavogi keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og endaði í 4 sæti í einstaklingskeppni og 7 sæti í liðakeppni.
Útsláttarleikir einstaklinga
Magnús stóð sig frábærlega í undankeppni NM ungmenna og endaði í 3 sæti með 663 stig í trissuboga karla U18, sem er aðeins 3 stigum frá Íslandsmetinu sem Magnús setti fyrir mánuði á Evrópubikarmóti ungmenna í Búlgaríu. Þetta setti Magnús einnig í góða stöðu til að taka verðlaun á NUM
Í 16 manna úrslitum mættust Magnús og Axel Rantanen frá Finnlandi sem var í 14 sæti í undankeppni NUM. Það er svo sem lítið hægt að fjalla um þann leik þar sem að hann var engan veginn spennandi Magnús var yfirgnæfandi í leiknum og vann gífurlega örugglega 140-109 og hélt í 8 manna úrslit.
Í 8 manna úrslitum var bardaginn al Íslenskur, þar mættust Bergur Freyr Geirsson og Magnús Darri Markússon. Strákarnir byrjuðu jafnir 27-27, Magnús náði svo fullkominni umferð 30 stig á móti 27 frá Berg og tók því þriggja stiga forystu 57-54. Bergur náði að saxa á forskotið í þriðju umferð 27-26 og staðan 83-81 fyrir Magnúsi. Magnús náði að auka forskotið aftur í fjórðu umferð 29-28 og tók svo sigurinn í síðustu umferðinni 27-25. Lokastaðan 139-134 Magnús hélt í undanúrslit og Bergur endaði í 7 sæti í einstaklingskeppni á NUM 2026.
Í undanúrslitum mættust Magnús og Veeti Rantala frá Finnlandi sem var í 2 sæti í undankeppni NUM. Efstu 5 strákarnir í flokknum voru nánast jafnir í skori í undankeppni mótsins og gert ráð fyrir spennandi leik. En Magnús átti tvær “úps” umferðir í leiknum þar sem hann skoraði lægra en venjulega og sá Finnski tók því sigurinn 141-134 í leiknum. Magnús hélt því í brons úrslit og sá Finnski í gull úrslit.
Í brons úrslitum mættust Magnús og Narvi R. Jensen frá Færeyjum sem var í 5 sæti í undankeppni NUM. Sá Færeyski átti betri dag í þetta sinn og vann leikinn 135-128 eftir eins “úps” umferð frá Magnúsi þar sem hann skoraði 21 stig. Þetta voru ein af aðeins tveim verðlaunum sem Færeyjar unnu á öllu NM ungmenna 2026 og var mikil ánægja með það meðal okkar frænda. Magnús þurfti að láta sér duga fjórða sætið að þessu sinni, en enginn vafi að getustigslega séð er hann meðal þeirra bestu á Norðurlöndum og þó að víðar væri leitað, þó að medalían hafi ekki skilað sér í vasann í þetta sinn.
Útsláttarleikir liða
Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna (hvert land má skipa mörgum liðum á NM).
Í 16 liða úrslitum endaði leikurinn al Íslenskur þar sem lið 1 og lið 3 frá Íslandi mættust.
Bergur Freyr Geirsson og Eva María Einarsdóttir bæði úr BF Boganum enduðu saman í liði sem lið 3 frá Íslandi sem var í 12 sæti í undankeppni NM
Magnús Darri Markússon og Elísabet Fjóla Björnsdóttir bæði úr BF Boganum enduðu saman í liði sem lið 1 frá Íslandi sem var í 5 sæti í undankeppni NM
Þar tók lið 1 frá Íslandi sigurinn á móti liði 3 frá Íslandi 145-102. Ísland lið 3 (Bergur og Eva) enduðu því í 10 sæti í liðakeppni á NUM 2026. Það er ekki oft sem Ísland keppir við Ísland, þar sem það getur bara gerst á NUM.
Í 8 liða úrslitum mættust aðal lið Íslands (Magnús og Fjóla) og lið 2 frá Svíþjóð sem var í 4 sæti í undankeppni NM. Leikurinn var mjög spennandi. Svíjar byrjuðu 1 stigi yfir 37-36 eftir fyrstu umferð. Þau jöfnuðu aðra umferð 38-38 og Ísland náði svo forskoti Svíja til baka í þriðju umferð 31-30 og staðan í leiknum því jöfn 105-105 og aðeins ein umferð eftir af leiknum. Loka umferðin endaði 33-31 í vil Svíja og lokastaðan því Ísland 136 Svíþjóð 138. Krakkarnir okkar enduðu því í 7 sæti í liðakeppni á NM ungmenna 2026.
Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.
Áfram Ísland!!


