Eva María 10 sæti einstaklinga og 12 sæti liða á NM ungmenna

Eva María Einarsdóttir úr BF Boganum í Kópavogi keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og endaði í 10 sæti í einstaklingskeppni og 12 sæti í liðakeppni.

Útsláttarleikir einstaklinga

Eva er nýlega byrjuð í íþróttinni og var að keppa í sínu fyrsta landsliðsverkefni til að byggja upp reynslu og læra. Eva stóð sig fínt í undankeppni NM ungmenna og endaði í 10 sæti með 382 stig í trissuboga kvenna U18.

Í 16 manna úrslitum mættust Eva og Nathalie Schytte Pedersen frá Noregi sem var í 7 sæti í undakeppni NM. Þar tók sú Norska sigurinn gegn Evu 132-92 og sló Evu út. Eva endaði því í 10 sæti á NM ungmenna 2026. Flott að enda í topp 10 á fyrsta alþjóðlega mótinu.

Útsláttarleikir liða

Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna (hvert land má skipa mörgum liðum á NM).

Í 16 liða úrslitum endaði leikurinn al Íslenskur þar sem lið 1 og lið 3 frá Íslandi mættust.

Bergur Freyr Geirsson og Eva María Einarsdóttir bæði úr BF Boganum enduðu saman í liði sem lið 3 frá Íslandi sem var í 12 sæti í undankeppni NM

Magnús Darri Markússon og Elísabet Fjóla Björnsdóttir bæði úr BF Boganum enduðu saman í liði sem lið 1 frá Íslandi sem var í 5 sæti í undankeppni NM

Þar tók lið 1 frá Íslandi sigurinn á móti liði 3 frá Íslandi 145-102. Ísland lið 3 (Bergur og Eva) enduðu því í 10 sæti í liðakeppni á NUM 2026. Það er ekki oft sem Ísland keppir við Ísland, þar sem það getur bara gerst á NUM.

Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.

Ragnar, Þórdís og Lóa skara fram úr – Fjórir Norðurlandameistaratitlar og tvö Norðurlandamet á NM ungmenna

Áfram Ísland!!