Guðrún Þórðardóttir úr LF Freyju Reykjavík vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki á Íslandsmeistaramótinu utandyra 21 júní síðastliðinn í Fagralundi Kópavogi . Ásamt því sló hún sitt eigið Íslandsmet og Íslandsmet félagsliða. Heilt á litið góð frammistaða hjá Guðrúnu á ÍM, eða réttara sagt besta frammistaða langboga konu í sögu íþróttarinnar (það er það sem Íslandsmet er 😉)
Undankeppni ÍM:
Guðrún var efst í undankeppni kvenna á ÍM með nýtt Íslandsmet 545 stig, en hún átti eldra metið sjálf frá 2025, sem var 523 stig. Í undankeppni félagsliðakeppni var lið Guðrúnar efst í undankeppni og með nýtt Íslandsmet félagsliða 1575 stig en eldra metið var 1485 stig. Tvö Íslandsmet í félagsliðakeppni og efst á í undankeppni í einstaklings og liðakeppni, ekki amaleg frammistaða þar á ferðinni.
Keppni um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn kvenna:
Guðrún vann alla sína útsláttarleiki örugglega 6-0 og tók á endanum Íslandsmeistaratitilinn í úrslitaleiknum á móti liðsfélaga sínum í LFF Lea Elflein. Þetta er í fyrsta sinn sem Guðrún vinnur Íslandsmeistaratitil einstaklinga í meistaraflokki og hún gerði það með slíkum yfirburðum að það er varla nokkuð spennandi né fréttnæmt að fjalla um. Hún kom, sló öll metin, vann alla leikina án þess að tapa stigi, fullkomin frammistaða.
Keppni um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni:
Það var þó annað hægt að segja um titilinn óháð kyni. Guðrún var þar í 4 sæti í undankeppni ÍM. Guðrún vann sig auðveldlega í gegnum 16 manna úrslitin og 8 manna úrslitin líka 6-0 þó að sá leikur hafi verið gegn margföldum Íslandsmeistara go mjög sterkum keppanda Izaar Arnar Þorsteinssyni úr ÍF Akur á Akureyri. Guðrún var bara að skjóta það vel á mótinu.
Í undan úrslitum mætti hún svo Helga Má Hafþórssyni úr ÍF Akur, sem var efstur í undankeppni óháð kyni á ÍM og sló sjálfur Íslandsmetið í karla flokki á mótinu. Guðrún var því underdog leiksins. Guðrún tók fyrstu lotun 27-25 og 2-0 forystu í leiknum, þau jöfnuðu lotu 2 25-25 og staðan því 3-1 í leiknum. Guðrún vann svo líka þriðju lotu 25-22 og var komin í 5-1 forystu og útlit fyrir að hún væri á leið í gull úrslitin óháð kyni og að slá út sterkasta keppandann, þar sem að aðeins þarf 6 stig til að sigra leik. En Helgi náði að snúa leiknum við og tók fjórðu lotu 28-21 og fimmtu lotu 30-18 og náði að jafna leikinn 5-5 og knýja fram bráðabana, ein ör og sá sem hittir nær miðju vinnur. Þar var Helgi þó heppnari og skaut 10 á móti 7 frá Guðrúnu. Guðrún hélt því í brons úrslitaleikinn og Helgi í gull úrslitaleikinn.
Í brons úrslitaleiknum mætti hún svo margföldum Íslandsmeistara, Íslandsbikarmeistara og reynslubolta Sveini Sveinbjörnssyni úr BF Boganum í Kópavogi. Þar var púðrið byrjað að minnka og Guðrún tapaði leiknum 6-0.
En Guðrún var aðeins einni ör frá gull úrslitaleiknum óháð kyni sem er vel af sér vikið.
Keppni um Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni:
Aðeins tvo efstu lið í undankeppni halda áfram í útsláttarleiki í félagsliða og fara því beint í gull úrslit. Þar mættust lið Langbogafélagsins Freyju í Reykjavík sem vann titilinn árið 2025 og Íþróttafélagsins Akur á Akureyri. Liðin voru mjög jöfn í undankeppni en Reykavíkingar voru aðeins sterkari (1575-1568).
Reykvíkingar tóku fyrstu lotuna 42-40 og 2-0 forystu í leiknum. Akureyringar náðu sigri í annari lotu með 1 stigi 39-38 og jöfnuðu leikinn 2-2. Akureyringar náðu svo frábærri umferð 48-37 og tóku forystu í leiknum 4-2. Í fjórðu og síðustu lotu leiksins tryggðu Akureyringar sér sigurinn með 36-31 sigur á loka lotunni og því 6-2 sigur í leiknum og fyrsta Íslandsmeistaratitil félagsliða í keppnisgreininni.
Guðrún tók því silfrið í liðakeppni ásamt félagsliði sínu. LFF2 tók bronsið.
Samantekt af árangri:
- Íslandsmeistari langboga kvenna – Guðrún Þórðardóttir – LF Freyja Reykjavík
- Silfur Lea Elflein LFF
- Brons Tinna Guðbjartsdóttir LFF
- 4 sæti um titilinn óháð kyni.
- Silfur í félagsliðakeppni
- Guðrún Þórðardóttir LFF – Íslandsmet Langboga kvenna meistaraflokkur 545 stig – Metið var áður 523 og Guðrún átti það sjálf frá síðasta ári
- Langbogafélagið Freyja Reykjavík – Íslandsmet Langboga félagsliðakeppni meistaraflokkur 1575 stig – Metið var áður 1485 stig
- Liðsmenn
- Ralfs Simanis
- Guðrún Þórðardóttir
- Lea Elflein
- Liðsmenn
Mögulegt er að sjá nánari upplýsingar um ÍM í fréttum á bogfimi.is




