Lóa Margrét Hauksdóttir tekur 3 Íslandsmeistaratitla og slær 2 Íslandsmet á sínu fyrsta Íslandsmóti

Lóa Margrét Hauksdóttir sýndi frábæra frammistöðu á Íslandsmóti ungmenna í byrjun febrúar. En þar vann hún Íslandsmeistaratitil sveigboga kvenna U16 ásamt því að vinna báða félagsliða titlana (kvenna og blandað lið). Frábært start hjá efnilegri stelpu sem okkur hlakkar til að sjá meira frá í framtíðinni.

Íslandsmeistaratitlar sem Lóa vann til á Íslandsmóti ungmenna:

  1. Berbogi U16 kvenna Lóa Margrét Hauksdóttir
  2. Berbogi U16 blandað lið BF Boginn (Lóa Margrét Hauksdóttir og Baldur Freyr Árnason)
  3. Berbogi U16 kvenna lið BF Boginn (Ylfa Karen Guðbjörnsdóttir og Lóa Margrét Hauksdóttir)

Íslandsmet sem Lóa átti hlutdeild í á Íslandsmóti ungmenna:

Berbogi undankeppni U16 kvenna lið 824 stig (nýtt)
BF Boginn Ylfa Karen Guðbjörnsdóttir + Lóa Margrét Hauksdóttir

Berbogi undankeppni U16 blandað lið 880 stig (var 844)
BF Boginn Lóa Margrét Hauksdóttir + Baldur Freyr Árnason

Íslandsmót ungmenna innanhúss 2023 var skipt niður í tvö mót sem haldin voru í Bogfimisetrinu. Íslandsmót U16/U18 sem haldið var á laugardeginum 4 febrúar og Íslandsmót U21 sem haldið var á sunnudeginum 5 febrúar. Samtals var keppnin sjálf lengri en 22 klukkutímar yfir þessa tvo daga, til viðbótar við tímann sem tekur að undirbúa og ganga frá. Því vildi BFSÍ koma sérstaklega á framfæri sínum þökkum til starfsfólks BFSÍ og öllum sjálfboðaliðum sem aðstoðuðu við hald mótsins fyrir vel heppnað mót sem gekk frábærlega í krefjandi aðstæðum.

Fjöldi keppenda á Íslandsmótum ungmenna er byrjaður að aukast aftur sem er jákvætt, en þátttaka er enn 9% lægri en var á síðasta Íslandsmóti ungmenna fyrir kórónuveirufaraldurinn. Það er því að taka aðeins lengri tíma en áætlað var að koma þátttöku aftur í jafnvægi og fjölgun keppenda. 40 keppendur kepptu á mótinu að þessu sinni. Niðurstöður mótsins voru birtar í úrslitabirtingakerfi alþjóðabogfimisambandsins ianseo og er hægt að finna á heimasíðu þeirra ianseo.net. Búið er að uppfæra niðurstöður og ranking lista í mótakerfi BFSÍ.

Sýnt var beint frá mótinu á Youtube rásinni Archery TV Iceland 

Niðurstöður mótsins er hægt að finna á úrslitabirtingakerfi alþjóðabogfimisambandsins ianseo  og í mótakerfi BFSÍ 

Mögulegt er að finna myndir af mótunum á smugmug

40 titlar veittir og 18 Íslandsmet slegin á Íslandsmótum ungmenna um helgina