Kristjana Rögn í 10 sæti einstaklinga og 6 sæti liða

Kristjana Rögn Andersen úr SkotÍs á Ísafirði keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og endaði í 10 sæti í einstaklingskeppni og 6 sæti í liðakeppni.

Útsláttarleikir einstaklinga

Kristjana endaði í 10 sæti með 136 stig í berboga kvenna U21 í undankeppni NUM 2026

Í 16 manna úrslitum mættust Kristjana og Edith Arvidsson frá Svíþjóð sem var í 7 sæti undankeppni NM. Sænska tók nokkuð öruggann sigur gegn Kristjönu 18-8, 20-4 og 20-6 og því 6-0 sigur. Kristjana endaði því í 10 sæti í einstaklingskeppni á NUM 2026.

Útsláttarleikir liða

Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna. Lóa Margrét Hauksdóttir úr BF Boganum í Kópavogi og Kristjana Rögn Andersen úr SkotÍs Ísafirði enduðu saman í liði sem lið 1 frá Íslandi sem var í 6 sæti í undankeppni NM (hvert land má skipa mörgum liðum á NM).

Í 8 liða úrslitum mættu krakkarnir okkar liði 2 frá Svíþjóð sem var í öðru sæti undankeppni NM (já Svíjar áttu 3 sterkustu liðin á NM, enda hryllilega sterk berbogaþjóð. Þegar að heimsmetum í berboga var bætt við á heimsþinginu 2021 djókaði framkvæmdastjóri heimssambandsins upp í pontu að “það væri bara svo Svíjarnir gætu tekið þau”). Krakkarnir okkar áttu því fjall að klífa gegn Svíjum í 8 liða úrslitum. Svíjar tóku fyrstu lotu með naumum mun 27-26, aðra lotu 26-16 og þriðju lotu 25-18 og Svíjar tóku því sigurinn 6-0 og krakkarnir okkar enduðu í 6 sæti liða á NUM 2026. Gaman er að geta að lið 2 frá Svíþjóð sem sigraði krakkana okkar vann á endanum titilinn á mótinu.

Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.

Ragnar, Þórdís og Lóa skara fram úr – Fjórir Norðurlandameistaratitlar og tvö Norðurlandamet á NM ungmenna

Áfram Ísland!!