Auður Alma í 10 sæti einstaklinga og 6 sæti liða

Auður Alma Viktorsdóttir úr SkotÍs Ísafirði keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og endaði í 10 sæti í einstaklingskeppni og 6 sæti í liðakeppni.

Útsláttarleikir einstaklinga

Auður stóð sig fínt í undankeppni NM ungmenna og endaði í 13 sæti með 344 stig í berboga kvenna U18.

Í 16 manna úrslitum mættust Auður og Mirre Abdali Larsson frá Svíþjóð sem var í 4 sæti undankeppni NM. Auður vann fyrstu lotuna 18-14 og Sænska svaraði með því að taka aðra lotu 17-15 og staðan því jöfn 2-2. Sú Sænska náði svo þriðju lotu 20-14 og fjórðu lotu 17-15 og tók því sigurinn 6-2. Auður endaði því í 10 sæti í einstaklingskeppni á NUM 2026.

Útsláttarleikir liða

Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna. Dagur Ómarsson úr BF Hróa Hetti og  Auður Alma Viktorsdóttir úr SkotÍs Ísafirði enduðu saman í liði sem lið 1 frá Íslandi sem var í 7 sæti í undankeppni NM (hvert land má skipa mörgum liðum á NM).

Í 16 liða úrslitum mættu krakkarnir okkar liði 2 frá Noregi sem var í 10 sæti í undankeppni NM. Þar tóku krakkarnir okkar glæsilegann sigur, fyrstu lotu 25-20, annarri lotu 25-22, þriðju lotu 28-12 og 6-0 sigur í leiknum. Þau héldu því áfram í 8 liða úrslit NUM.

Í 8 liða úrslitum mættu krakkarnir okkar liði 2 frá Svíþjóð sem var í öðru sæti undankeppni NM (já Svíjar áttu 3 sterkustu liðin á NM, enda hryllilega sterk berbogaþjóð. Þegar að heimsmetum í berboga var bætt við á heimsþinginu 2021 djókaði framkvæmdastjóri heimssambandsins upp í pontu að “það væri bara svo Svíjarnir gætu tekið þau”). Krakkarnir okkar áttu því fjall að klífa gegn Svíjum í 8 liða úrslitum. Svíjar tóku fyrstu lotu 37-26, aðra lotu 30-20, en krakkarnir okkar náðu sér á strik í þriðju lotu með 28 stig, en það var ekki nóg gegn 31 stigi frá Svíjum sem tóku því sigurinn 6-0 og krakkarnir okkar enduðu í 6 sæti liða á NUM 2026

Gaman er að geta að lið 2 frá Svíþjóð sem sigraði krakkana okkar vann á endanum titilinn á mótinu, gegn Svíþjóð 1 sem tók silfur og Svíþjóð 3 tók að sjálfsögðu brons í liða

Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.

Ragnar, Þórdís og Lóa skara fram úr – Fjórir Norðurlandameistaratitlar og tvö Norðurlandamet á NM ungmenna

Áfram Ísland!!