Henry Snæbjörn í 6 sæti einstaklinga og 11 sæti liða

Henry Snæbjörn Johnston úr BF Boganum í Kópavogi keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og endaði í 6 sæti í einstaklingskeppni og 11 sæti í liðakeppni.

Útsláttarleikir einstaklinga

Henry stóð sig fínt í undankeppni NM ungmenna og endaði í 8 sæti með 286 stig í berboga karla U18

Í 8 manna úrslitum mættust Henry og Isak Otto Eriksson frá Svíþjóð sem var í 1 sæti undankeppni NM og talinn sigurstranglegasti keppandinn. Sænski tók fyrstu lotuna með littlum mun 26-25, aðra lotuna 29-22 og þriðju lotuna 27-12 og því nokkuð öruggann sigur gegn Henry, sem endaði 6 sæti í einstaklingskeppni á NUM 2026. Gaman er að geta að sá Sænski vann endanlega mótið.

Útsláttarleikir liða

Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna. Hvert land má skipa mörgum liðum á NM, en ef það eru einhverjir sem eru ekki með lið þá er þeim safnað saman og búið til “Nordic Team” úr þeim. Þannig var það í tilfelli Henry.

Í 16 liða úrslitum mætti lið Henry liði 4 frá Svíþjóð. Þar tóku Svíjar öruggann sigur 6-0 og Henry endaði því í 11 sæti í liðakeppni á NUM 2026.

Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.

Ragnar, Þórdís og Lóa skara fram úr – Fjórir Norðurlandameistaratitlar og tvö Norðurlandamet á NM ungmenna

Áfram Ísland!!