Ísar Logi á EM ungmenna í 30 sæti einstaklinga og 7 sæti liða

Ísar Logi Þorsteinsson skemmti sér vel ásamt 376 íþróttamönnum frá 40 Evrópuþjóðum sem kepptu á Evrópumeistarmóti (EM) ungmenna í utandyra bogfimi sem haldið var í Róm Ítalíu 20-25 júlí.

Ísar endaði í 30 sæti í einstaklingskeppni og 7 sæti í liðakeppni, og sló eitt landsliðsmet.

Einstaklingskeppni:

Ísar endaði í 30 sæti í undankeppni einstaklinga með skorið 589 og mætti því Alvaro Pardo Gutierrez frá Spáni í 32 manna úrslitum, sem var í 3 sæti undankeppni EMU. Þar reyndist sá Spænski sterkari og sló Ísar út 145-123 og Ísar endaði því í 30 sæti í einstaklingskeppni.

Liðakeppni:

Í trissuboga U21 liðakeppni enduðu strákarnir okkar (Ragnar/Natan/Ísar) í 7 sæti í undankeppni EMU með 1786 stig sem er landsliðsmet, metið var áður 1743 stig.

Strákarnir okkar voru slegnir út í 8 manna úrslitum af Spáni sem var í 2 sæti í undankeppni EMU 226-208. Okkar strákar enduðu því í 7 sæti í liðakeppni á EMU

Nánari upplýsingar um EM ungmenna er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Ísland með verðlaun í fyrsta sinn á EM ungmenna utandyra, bæði silfur og brons í hús