Eydís Elide á EM ungmenna að keppa um brons

Eydís Elide Sartori skemmti sér vel ásamt 376 íþróttamönnum frá 40 Evrópuþjóðum sem kepptu á Evrópumeistarmóti (EM) ungmenna í utandyra bogfimi sem haldið var í Róm Ítalíu 20-25 júlí.

Eydís endaði í 19 sæti í einstaklingskeppni og 4 sæti í liðakeppni.

Einstaklingskeppni:

Eydís endaði í 20 sæti í undankeppni einstaklinga með skorið 587 og mætti því Hana Arapovic frá Króatíu í 32 manna úrslitum, sem var í 14 sæti undankeppni EMU. Þar reyndist Króatinn sterkari og sló Eydísi út 139-124 og Eydís endaði því í 19 sæti í einstaklingskeppni.

Liðakeppni:

Í trissuboga U18 liðakeppni enduðu stelpurnar okkar (Eydís/Sóldís/Fjóla) í 4 sæti í undankeppni EMU með 1740 stig sem er ekki langt frá landsliðsmetinu sem er 1752 stig.

Stelpurnar okkar töpuðu undanúrslitaleiknum gegn sterkasta liðið mótsins Tyrklandi 228-191 og fóru því í brons úrslitaleikinn.

Í brons úrslitaleiknum mættu stelpurnar okkar liði Rús… hehemm, liði “hlutlausra íþróttamanna” sem voru í öðru sæti í undankeppni mótsins, en höfðu tapað óvænt gegn Ítalíu í undanúrslitum. Þar tók “Hlutlausa einstaklinga liðið” sigurinn gegn Íslandi 227-201. Tyrkland tók gullið á móti Ítalíu 224-216 og stelpurnar okkar enduðu því í 4 sæti.

Ísland vakti mikla athygli á mótinu, bæði sem liðið sem skemmtir sér mest í úrslitum og sem “outlier-inn” í úrslitaleikjum liða, sem er venjulega bardagi milli fjölmennustu og stærstu þjóða Evrópu þar sem talent pool-ið er mun dýpra.

Nánari upplýsingar um EM ungmenna er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Ísland með verðlaun í fyrsta sinn á EM ungmenna utandyra, bæði silfur og brons í hús