Henry Snæbjörn á EM ungmenna í 26 sæti einstaklinga og 5 sæti liða

Henry Snæbjörn Johnston skemmti sér vel ásamt 376 íþróttamönnum frá 40 Evrópuþjóðum sem kepptu á Evrópumeistarmóti (EM) ungmenna í utandyra bogfimi sem haldið var í Róm Ítalíu 20-25 júlí.

Henry endaði í 26 sæti í einstaklingskeppni og 5 sæti í liðakeppni, og setti tvö landsliðsmet.

Einstaklingskeppni:

Henry endaði í 26 sæti í undankeppni einstaklinga með skorið 397 og mætti því Asaf Ömer Doruk frá Tyrklandi í 32 manna úrslitum, sem var í 7 sæti undankeppni EMU. Þar reyndist Tyrkinn sterkari og sló Henry út 140-100 og Henry endaði því í 26 sæti í einstaklingskeppni.

Liðakeppni:

Í trissuboga U18 liðakeppni enduðu strákarnir okkar (Bergur/Henry/Magnús) í 5 sæti í undankeppni EMU með 1625 stig sem er landsliðsmet.

Strákarnir okkar voru slegnir út í 8 manna úrslitum af Eistlandi sem var í 4 sæti í undankeppni EMU 215-171. En Eistar tóku svo einnig sterkasta lið Tyrklands út í undanúrslitum og tóku á endanum silfrið eftir tap gegn Ítalíu í gull úrslitum. Okkar strákar enduðu því í 5 sæti í liðakeppni á EMU

Þetta var í fyrsta sinn sem Ísland skipaði U18 karla liði í trissuboga á EM ungmenna og því settu þeir bæði Íslandsmet landsliða í útsláttarleik og undankeppni og settu besta árangur Íslands í liðakeppni til dags.

Nánari upplýsingar um EM ungmenna er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Ísland með verðlaun í fyrsta sinn á EM ungmenna utandyra, bæði silfur og brons í hús