Ísland hefur sent marga íþróttamenn á Ólympíuleikana frá því að við tókum þátt fyrst árið 1908, en heildartalan er um 4+14+53+153=224 Íslendingar. (sjá lista neðst í greininni)
Þessar upplýsingar er hægt að finna á vefsíðu ÍSÍ, við tókum bara saman einstaklingana og röðuðum þeim eftir því hve oft þeir hafa tekið þátt neðst í greininni 🙂
http://www.isi.is/afreksithrottir/olympiuleikar/sumarleikar/keppendalisti-a-olympiuleikum/
Uppruninn af þessari grein var forvitnin um hve margir Íslendingar hefðu keppt á Ólympíuleikunum. Eftir að hafa skoðað það er ljóst að ekki allar íþróttagreinar á Ólympíuleikunum eru jafnar.
Það er keppt í fjölmörgum íþróttum á Ólympíuleiknum og margir íþróttamenn sem eru með Ólympíuleikana að markmiði, en spurningin er ef þig langar að komast á Ólympíuleikana hvaða íþrótt væri auðveldast fyrir þig að byrja í eða hvar ættirðu mestu líkurnar? (ég er ekki að segja að nein Ólympíuíþrótt sé auðveld, en það er klárlega munur á milli þeirra)
Svarið við spurninguni er, það skiptir ekki máli, stundaðu þá íþrótt sem þér finnst skemmtileg ekki vera að eltast við einhverja medalíu, farðu bara í Ísspor og kauptu medalíuna og haltu áfram að skemmta þér og bæta þig.
En raunverulega svarið er einfalt, íþróttirnar sem gefa út flestar medalíur (semsagt greinar sem er keppt í oftar en öðrum greinum).
Gott dæmi um þetta er að bera saman bogfimi og sund.
Í bogfimi hefur íþróttamaður frá Íslandi aðeins 2 sénsa á að vinna medalíu, í einstaklings keppni og í liðakeppni, reyndar eru mjög fá lið, aðeins 11 þjóðir ná liðið inn í bogfimi á Ólympíuleikana að við getum sagt að það sé nánast ómögulegt fyrir Íslendinga að komast þar inn. Í bogfimi getur hver þjóð aðeins unnið sæti til að senda 1 einstakling eða 3 einstaklinga lið og aðeins 11 liðasæti í boði og svo 1 liða sæti fyrir þjóðina sem heldur leikana.
Sem þýðir að það eru 25 einstaklingssæti í boði og 36 sem taka þátt í liðakeppninni, svo eru 3 sæti gefin til smáþjóða sem senda að meðaltali færri en 7 manns á hverja leika (Ísland er langt yfir meðaltali og getur ekki fengið þau).
En svo verður þetta flóknara, það eru 8 efstu á heimsmeistarmóti þar sem um 200-250 manns að keppa sem fá sæti á Ólympíuleikana. Svo er hver heimsálfa sem fær sæti, (Evrópa fær 3 sæti og um 100-125 manns að keppa um þau sæti), og svo er final qualifier World Cup mót þar sem eru 3 sæti í boði (um 130-160 manns að keppa um þau sæti og allar þjóðir sem eru ekki komnar með sæti geta keppt)
Þannig að allt útreiknað eru 14 sæti sem þú gætir keppt um: Top 8 á heimsmeistarmóti, top 3 á Evrópumóti eða top 3 á World Cup Final Qualifier og þarf að berjast við rúmlega 300 manns frá rúmlega 100 þjóðum um þau sæti. Og þú þarf að ná lágmarksskori til að mega nota sætið ef þú vinnur það. Meiri hluti þjóða sem reyna koma ekki einstaklingi á Ólympíuleikana í bogfimi. Gangi þér vel 🙂
En í sundi hefur íþróttamaður frá Íslandi 17 möguleika á að vinna medalíu, í mismunandi tegundum af sundi, upp, niður, vinstri, hægri og guð má vita hvað hitt er hehe 😉 , í sundi eru einnig 3 liðakeppnir þar sem 16 þjóðir taka þátt semsagt 48 þjóðasæti samtals (þó að það séu oftast sömu þjóðirnar sem vinna sæti í allar 3 greinarnar), og samtals má hver þjóð senda hámark 26 einstaklinga lið í allar sundgreinarnar samanlagt, hámark 2 í hverja týpu af sundi, en hver einstaklingur má keppa í mörgum mismunandi greinum.
Til að komast á Ólympíuleikana í einstaklingsgrein í sundi þarftu að ná lágmarks qualifing tímanum. Og ef þú nærð honum ekki fær hver þjóð samt eitt sæti sem þú gætir fengið. Sjá qualifing hér https://en.wikipedia.org/wiki/Swimming_at_the_2016_Summer_Olympics
Miklu auðveldara en í bogfimi ekki satt 🙂
Sjáiði bara þennan mann frá Afríku sem var að keppa á Ólympíuleikunum í Sydney, SEM HAFÐI ALDREI SÉÐ SUNDLAUG ÁÐUR.
Þess vegna eru þeir sem vinna flestar medalíur á Ólympíuleikunum yfirleitt í íþróttum eins og sundi, t.d Micheal Phelps sem vann 22 medalíur á 3 Ólympíuleikum í sundi, hann hefði getið unnið hámark 51 medalíu ef hann hefði keppt í öllum sund greinunum.
Til samanburðar til þess að vinna 22 medalíur í Bogfimi þyrfir þú að vinna einstaklingsmedalíu á öllum Ólympíuleikum næstu 88 ár, en í sundi væri nóg að taka þátt á næstu 2 Ólympíuleikum og vinna flestar einstaklings greinarnar.
Þannig að ef þú hefðir byrjað þegar þú varst 15 ára (sem er yngsti keppandi í bogfimi í sögu leikana), þá værirðu 107 ára þegar þú værir búin að bæta met Micheal Phelps með því að vinna medalíu á hverjum einustu Ólympíuleikum, af því að tækifærin eru svo miklu færri. Aðeins 3 einstaklingar (2 konur og einn karl) hafa unnið fleiri en eina einstaklingsmedalíu í sögu nútíma bogfimi á Ólympíuleikunum. 2xPark Sung-Hyun (South Korea), 3xKim Soo Nyung (South Korea) og 2xDarrell Pace (USA).
Hér eru auðveldastu íþróttirnar fyrir Íslendinga til að komast á Ólympíuleikana:
Sund 139 keppendur samtals (það hafa verið að minnsta kosti 30 mismunandi tegundir af sund greinum á Ólympíuleikunum frá upphafi, ég ætla ekki að reyna að brjóta það niður. Það eru 17 sund greinar sem keppt er í núna)
Frjálsíþróttir 111 keppendur samtals, (hlaup:48, stökk:20, kast:33, tugþraut:10(tugþraut: combo af kast, stökk og hlaup)
Handknattleikur 104 keppendur samtals (að liðið þarf að komast inn og aðeins 1 séns á medalíu, en þú getur setið á bekknum og samt verið keppandi og fengið medalíu 🙂 ….)
Júdó 14 keppendur samtals
Badminton 8 keppendur samtals
Lyftingar 7 keppendur samtals
Siglingar 6 keppendur samtals
Skotfimi 4 keppendur samtals
Áhaldafimleikar 3 keppendur samtals.
Bogfimi 0 keppendur samtals (samt eru til fleiri tegundir af bogfimi sem er keppt í heiminum en að sundi)
Í bogfimi er mjög erfitt að komast inn, en við erum nýbyrjuð og ætlum okkur að ná því 😉 Við erum komin með frábæra aðstöðu og frábært fólk, restin er bara tími, skemmtun og áhugi.
Ég byggji þetta mat einungis á hvað við höfum sent marga keppendur í þær íþróttir áður. Þeim mun fleiri sem við höfum sent þeim mun auðveldara hlýtur að vera að komast inn, ekki satt. Sumir einstaklingarnir kepptu í fleiri en einni grein og teljast því 2 keppendur, sama gildir um ef einstaklingurinn fór oftar en einu sinni á Ólympíuleika þá er hann aftur keppandi á ný. Sem dæmi eru 80 einstaklingar sem hafa keppt í sundi fyrir Ísland en þeir tóku þátt í 139 greinum.
Við getum ekki unnið nema við fáum að taka þátt 🙂
Hér er heildar listi yfir alla þá sem hafa tekið þátt á Ólympíuleikum fyrir Ísland og hvað þeir hafa komist oft á þá.
4 manns frá Íslandi hafa tekið þátt á 4 Ólympíuleikum
Bjarni Á. Friðriksson | Júdó, -95kg. | 1980 Moskva | |
Bjarni Á. Friðriksson | Júdó, -95kg. | 1984 Los Angeles | |
Bjarni Á. Friðriksson | Júdó -95kg. | 1988 Seoul | |
Bjarni Á. Friðriksson | Júdó -95kg. | 1992 Barcelona | |
Guðmundur Gíslason | Sund, 100m skriðsund | 1960 Róm | |
Guðmundur Gíslason | Sund, 100m skriðsund, 400m fjórsund | 1964 Tokyo | |
Guðmundur Gíslason | Sund, 100m skriðsund, 100m flugsund, 200m- og 400m fjórsund | 1968 Mexico City | |
Guðmundur Gíslason | Sund, 200m-, 400 fjórsund, 200m flugsund | 1972 Munchen | |
Jakob Jóhann Sveinsson | Sund, 200m bringusund | 2000 Sydney | |
Jakob Jóhann Sveinsson | Sund, 100m-, 200m bringusund | 2004 Aþena | |
Jakob Jóhann Sveinsson | Sund, 100m-, 200m bringusund | 2008 Peking | |
Jakob Jóhann Sveinsson | Sund, 100m-, 200m bringusund | 2012 London | |
Vésteinn Hafsteinsson | Frjálsíþróttir, kringlukast | 1984 Los Angeles | |
Vésteinn Hafsteinsson | Frjálsíþróttir, kringlukast | 1988 Seoul | |
Vésteinn Hafsteinsson | Frjálsíþróttir, kringlukast | 1992 Barcelona | |
Vésteinn Hafsteinsson | Frjálsíþróttir, kringlukast | 1996 Atlanta |
14 íslendingar hafa tekið þátt á 3 ólympíuleikum.
Ásgeir Örn Hallgrímsson | Handknattleikur | 2004 Aþena | |
Ásgeir Örn Hallgrímsson | Handknattleikur | 2008 Peking | |
Ásgeir Örn Hallgrímsson | Handknattleikur | 2012 London | |
Einar Vilhjálmsson | Frjálsíþróttir, spjótkast | 1984 Los Angeles | |
Einar Vilhjálmsson | Frjálsíþróttir, spjótkast | 1988 Seoul | |
Einar Vilhjálmsson | Frjálsíþróttir, spjótkast | 1992 Barcelona | |
Guðjón Valur Sigurðsson | Handknattleikur | 2004 Aþena | |
Guðjón Valur Sigurðsson | Handknattleikur | 2008 Peking | |
Guðjón Valur Sigurðsson | Handknattleikur | 2012 London | |
Guðmundur Hrafnkelsson | Handknattleikur | 1988 Seoul | |
Guðmundur Hrafnkelsson | Handknattleikur | 1992 Barcelona | |
Guðmundur Hrafnkelsson | Handknattleikur | 2004 Aþena | |
Jakob Sigurðsson | Handknattleikur | 1984 Los Angeles | |
Jakob Sigurðsson | Handknattleikur | 1988 Seoul | |
Jakob Sigurðsson | Handknattleikur | 1992 Barcelona | |
Jón Arnar Magnússon | Frjálsíþróttir, tugþraut | 1996 Atlanta | |
Jón Arnar Magnússon | Frjálsíþróttir, tugþraut | 2000 Sydney | |
Jón Arnar Magnússon | Frjálsíþróttir, tugþraut | 2004 Aþena | |
Ólafur Indriði Stefánsson | Handknattleikur | 2004 Aþena | |
Ólafur Indriði Stefánsson | Handknattleikur | 2008 Peking | |
Ólafur Indriði Stefánsson | Handknattleikur | 2012 London | |
Róbert Gunnarsson | Handknattleikur | 2004 Aþena | |
Róbert Gunnarsson | Handknattleikur | 2008 Peking | |
Róbert Gunnarsson | Handknattleikur | 2012 London | |
Rúnar Alexanderson | Áhaldafimleikar, bogahestur | 2000 Sydney | |
Rúnar Alexandersson | Áhaldafimleikar, bogahestur | 1996 Atlanta | |
Rúnar Alexandersson | Áhaldafimleikar, bogahestur | 2004 Aþena | |
Sigfús Sigurðsson | Frjálsíþróttir, kúluvarp | 1948 London | |
Sigfús Sigurðsson | Handknattleikur | 2004 Aþena | |
Sigfús Sigurðsson | Handknattleikur | 2008 Peking | |
Sigurður Einarsson | Frjálsíþróttir, spjótkast | 1984 Los Angeles | |
Sigurður Einarsson | Frjálsíþróttir, spjótkast | 1988 Seoul | |
Sigurður Einarsson | Frjálsíþróttir, spjótkast | 1992 Barcelona | |
Snorri Steinn Guðjónsson | Handknattleikur | 2004 Aþena | |
Snorri Steinn Guðjónsson | Handknattleikur | 2008 Peking | |
Snorri Steinn Guðjónsson | Handknattleikur | 2012 London | |
Þórey Edda Elísdóttir | Frjálsíþróttir, stangarstökk | 2000 Sydney | |
Þórey Edda Elísdóttir | Frjálsíþróttir, stangarstökk | 2004 Aþena | |
Þórey Edda Elísdóttir | Frjálsíþróttir, stangarstökk | 2008 Peking | |
Örn Arnarson | Sund, 200m skriðsund, 200m baksund | 2000 Sydney | |
Örn Arnarson | Sund, 50m skriðsund | 2004 Aþena | |
Örn Arnarson | Sund, 100m skriðsund, 100m baksund | 2008 Peking |
53 manns frá Íslandi hafa tekið þátt á 2 ólympíuleikum
Alexander Petersson | Handknattleikur | 2008 Peking | |
Alexander Petersson | Handknattleikur | 2012 London | |
Alfreð Gíslason | Handknattleikur | 1984 Los Angeles | |
Alfreð Gíslason | Handknattleikur | 1988 Seoul | |
Arnór Atlason | Handknattleikur | 2008 Peking | |
Arnór Atlason | Handknattleikur | 2012 London | |
Atli Hilmarsson | Handknattleikur | 1984 Los Angeles | |
Atli Hilmarsson | Handknattleikur | 1988 Seoul | |
Árni Már Árnason | Sund, 50m skriðsund | 2008 Peking | |
Árni Már Árnason | Sund, 50m skriðsund | 2012 London | |
Ásdís Hjálmsdóttir | Frjálsíþróttir, spjótkast | 2008 Peking | |
Ásdís Hjálmsdóttir | Frjálsíþróttir, spjótkast | 2012 London | |
Ásmundur Bjarnason | Frjálsíþróttir, 4x100m boðhlaup | 1948 London | |
Ásmundur Bjarnason | Frjálsíþróttir, 100m-, 200m hlaup | 1952 Helsinki | |
Bjarni Stefánsson | Frjálsíþróttir, 100m-, 400m hlaup | 1972 Munchen | |
Bjarni Stefánsson | Frjálsíþróttir, 100m-, 400m hlaup | 1976 Montreal | |
Björgvin Páll Gústavsson | Handknattleikur | 2008 Peking | |
Björgvin Páll Gústavsson | Handknattleikur | 2012 London | |
Brynjar Kvaran | Handknattleikur | 1984 Los Angeles | |
Brynjar Kvaran | Handknattleikur | 1988 Seoul | |
Einar Örn Þorvarðarson | Handknattleikur | 1984 Los Angeles | |
Einar Örn Þorvarðarson | Handknattleikur | 1988 Seoul | |
Elías Sveinsson | Frjálsíþróttir, tugþraut | 1976 Montreal | |
Elín Sigurðardóttir | Sund, 50m skriðsund | 1996 Atlanta | |
Elín Sigurðardóttir | Sund, 50m skriðsund | 2000 Sydney | |
Elsa Nielsen | Badminton, einliðaleikur | 1992 Barcelona | |
Elsa Nielsen | Badminton, einliðaleikur | 1996 Atlanta | |
Erlendur Valdimarsson | Frjálsíþróttir, kringlukast | 1972 Munchen | |
Erlendur Valdimarsson | Frjálsíþróttir, kringlukast | 1976 Montreal | |
Eydís Konráðsdóttir | Sund, 100m flugsund | 1996 Atlanta | |
Eydís Konráðsdóttir | Sund, 100m flugsund | 2000 Sydney | |
Geir Sveinsson | Handknattleikur | 1988 Seoul | |
Geir Sveinsson | Handknattleikur | 1992 Barcelona | |
Guðmundur Sigurðsson | Lyftingar, milliþungavigt | 1972 Munchen | |
Guðmundur Sigurðsson | Lyftingar, milliþungavigt | 1976 Montreal | |
Guðmundur Þórður Guðmundsson | Handknattleikur | 1984 Los Angeles | |
Guðmundur Þórður Guðmundsson | Handknattleikur | 1988 Seoul | |
Guðrún Arnardóttir | Frjálsíþróttir, 100m-, 400m grindahlaup | 1996 Atlanta | |
Guðrún Arnardóttir | Frjálsíþróttir, 400m grindarhlaup | 2000 Sydney | |
Gunnlaugur Jónasson | Siglingar, stýrimaður á 470 international | 1984 Los Angeles | |
Gunnlaugur Jónasson | Siglingar, stýrimaður á 470 international | 1988 Seoul | |
Hafsteinn Ægir Geirsson | Siglingar, laser | 2000 Sydney | |
Hafsteinn Ægir Geirsson | Siglingar, laser | 2004 Aþena | |
Hilmar Þorbjörnsson | Frjálsíþróttir, 100m hlaup | 1956 Melbourne | |
Hilmar Þorbjörnsson | Frjálsíþróttir, 100m hlaup | 1960 Róm | |
Hjörtur Már Reynisson | Sund, 100m flugsund | 2004 Aþena | |
Hjörtur Már Reynisson | Sund, 100m flugsund | 2008 Peking | |
Hrafnhildur Guðmundsdóttir | Sund, 100m skriðsund | 1964 Tokyo | |
Hrafnhildur Guðmundsdóttir | Sund, 100m-, 200m skriðsund, 200m fjórsund | 1968 Mexico City | |
Hreiðar Levý Guðmundsson | Handknattleikur | 2008 Peking | |
Hreiðar Levý Guðmundsson | Handknattleikur | 2012 London | |
Hreinn Halldórsson | Frjálsíþróttir, kúluvarp | 1976 Montreal | |
Hreinn Halldórsson | Frjálsíþróttir, kúluvarp | 1980 Moskva | |
Ingimundur Ingimundarson | Handknattleikur | 2008 Peking | |
Ingimundur Ingimundarson | Handknattleikur | 2012 London | |
Íris Edda Heimisdóttir | Sund, 100m-, 200m bringusund | 2000 Sydney | |
Íris Edda Heimisdóttir | Sund, 100m bringusund | 2004 Aþena | |
Íris Inga Grönfeldt | Frjálsíþróttir, spjótkast | 1984 Los Angeles | |
Íris Inga Grönfeldt | Frjálsíþróttir, spjótkast | 1988 Seoul | |
Jón Þ. Ólafsson | Frjálsíþróttir, hástökk | 1964 Tokyo | |
Jón Þ. Ólafsson | Frjálsíþróttir, hástökk | 1968 Mexico City | |
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir | Sund, 100m-, 200m baksund | 2000 Sydney | |
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir | Sund, 50m-,100m skriðsund, 100m flugsund | 2004 Aþena | |
Kristján Arason | Handknattleikur | 1984 Los Angeles | |
Kristján Arason | Handknattleikur | 1988 Seoul | |
Lára Hrund Bjargardóttir | Sund, 100m-, 200m skriðsund | 2000 Sydney | |
Lára Hrund Bjargardóttir | Sund, 200m skriðsund, 200m fjórsund | 2004 Aþena | |
Oddur Sigurðsson | Frjálsíþróttir, 100m-, 400m hlaup | 1980 Moskva | |
Oddur Sigurðsson | Frjálsíþróttir, 400m hlaup | 1984 Los Angeles | |
Óskar Jakobsson | Frjálsíþróttir, spjótkast | 1976 Montreal | |
Óskar Jakobsson | Frjálsíþróttir, kringlukast, kúluvarp | 1980 Moskva | |
Óskar Sigurpálsson | Lyftingar, -90kg. | 1968 Mexico City | |
Óskar Sigurpálsson | Lyftingar, þungavigt | 1972 Munchen | |
Pétur Guðmundsson | Frjálsíþróttir, kúluvarp | 1988 Seoul | |
Pétur Guðmundsson | Frjálsíþróttir, kúluvarp | 1992 Barcelona | |
Ragna Ingólfsdóttir | Badminton, einliðaleikur | 2008 Peking | |
Ragna Ingólfsdóttir | Badminton, einliðaleikur | 2012 London | |
Ragnheiður Ragnarsdóttir | Sund, 50m-, 100m skriðsund | 2004 Aþena | |
Ragnheiður Ragnarsdóttir | Sund, 50m-, 100m skriðsund | 2008 Peking | |
Ragnheiður Runólfsdóttir | Sund, 100m-, 200m bringusund, 200m fjórsund | 1988 Seoul | |
Ragnheiður Runólfsdóttir | Sund, 100m-, 200m bringusund | 1992 Barcelona | |
Sarah Blake Bateman | Sund, 100m baksund | 2008 Peking | |
Sarah Blake Bateman | Sund, 50m skriðsund, 100m flugsund, 4x100m fjórsund | 2012 London | |
Sigurður Bergmann | Júdó, opinn flokkur | 1988 Seoul | |
Sigurður Bergmann | Júdó +95kg. | 1992 Barcelona | |
Sigurður Gunnarsson | Handknattleikur | 1984 Los Angeles | |
Sigurður Gunnarsson | Handknattleikur | 1988 Seoul | |
Stefán Jónsson | Sundknattleikur | 1936 Berlín | |
Stefán Jónsson | Handknattleikur | 1972 Munchen | |
Sverre Andreas Jakobsson | Handknattleikur | 2008 Peking | |
Sverre Andreas Jakobsson | Handknattleikur | 2012 London | |
Torfi Bryngeirsson | Frjálsíþróttir, stangarstökk | 1948 London | |
Torfi Bryngeirsson | Frjálsíþróttir, stangarstökk | 1952 Helsinki | |
Valbjörn Þorláksson | Frjálsíþróttir, stangarstökk | 1960 Róm | |
Valbjörn Þorláksson | Frjálsíþróttir, tugþraut | 1964 Tokyo | |
Valbjörn Þorláksson | Frjálsíþróttir, tugþraut | 1968 Mexico City | |
Vilhjálmur Einarsson | Frjálsíþróttir, þrístökk | 1956 Melbourne | |
Vilhjálmur Einarsson | Frjálsíþróttir, þrístökk | 1960 Róm | |
Þorgils Ó. Mathiesen | Handknattleikur | 1984 Los Angeles | |
Þorgils Ó. Mathiesen | Handknattleikur | 1988 Seoul | |
Þormóður Árni Jónsson | Júdó, þungavigt | 2008 Peking | |
Þormóður Árni Jónsson | Júdó, þungavigt | 2012 London | |
Þórdís Gísladóttir | Frjálsíþróttir, hástökk | 1976 Montreal | |
Þórdís Gísladóttir | Frjálsíþróttir, hástökk | 1984 Los Angeles | |
Örn Clausen | Frjálsíþróttir, 100m hlaup, tugþraut | 1948 London | |
Örn Clausen | Frjálsíþróttir, tugþraut | 1952 Helsinki |
153 einstaklingar hafa tekið þátt á einum sumar ólympíuleikum fyrir Ísland.
Alferð Karl Alfreðsson | Skotfimi, leirdúfa | 2000 Sydney | |
Anna Ólafsdóttir | Sund, 200m bringusund | 1948 London | |
Anton Sveinn McKee | Sund, 1500m skriðsund, 400m fjórsund | 2012 London | |
Ari Guðmundsson | Sund, 100m-, 400m skriðsund, 200m bringusund | 1948 London | |
Arnþór Ragnarsson | Sund, 100m-, 200m bringusund | 1988 Seoul | |
Aron Pálmarsson | Handknattleikur | 2012 London | |
Atli Steinarsson | Sund, 200m bringusund | 1948 London | |
Axel Axelsson | Handknattleikur | 1972 Munchen | |
Ágúst Ásgeirsson | Frjálsíþróttir, 1500m-, 3000m hindrunarhlaup | 1976 Montreal | |
Ágúst Ögmundsson | Handknattleikur | 1972 Munchen | |
Ágústa Þorsteinsdóttir | Sund, 100m skriðsund | 1960 Róm | |
Árni Sigurðsson | Sund, 100m-, 200m bringusund | 1984 Los Angeles | |
Árni Þór Hallgrímsson | Badminton, einliða- og tvíliðaleikur | 1992 Barcelona | |
Ásgeir Sigurgeirsson | Skotfimi, loftskammbyssa og frjáls skammbyssa | 2012 London | |
Bergsveinn Bergsveinsson | Handknattleikur | 1992 Barcelona | |
Bergur Ingi Pétursson | Frjálsíþróttir, sleggjukast | 2008 Peking | |
Birgir Finnbogason | Handknattleikur | 1972 Munchen | |
Birgir Sigurðsson | Handknattleikur | 1992 Barcelona | |
Birgir Þór Borgþórsson | Lyftingar, -100kg. | 1980 Moskva | |
Bjarki Sigurðsson | Handknattleikur | 1988 Seoul | |
Bjarni Guðmundsson | Handknattleikur | 1984 Los Angeles | |
Björgvin Björgvinsson | Handknattleikur | 1972 Munchen | |
Björgvin Hólm | Frjálsíþróttir, tugþraut | 1960 Róm | |
Broddi Kristjánsson | Badminton, einliða- og tvíliðaleikur | 1992 Barcelona | |
Bryndís Ólafsdóttir | Sund, 50m-, 100m-, 200m skriðsund | 1988 Seoul | |
Carl J. Eiríksson | Skotfimi, enskur riffill | 1992 Barcelona | |
Dagur Sigurðsson | Handknattleikur | 2004 Aþena | |
Eðvarð Þór Eðvarðsson | Sund, 100m-, 200m baksund | 1988 Seoul | |
Eggert Ólafur Bogason | Frjálsíþróttir, kringlukast | 1988 Seoul | |
Einar Sigurðsson | Handknattleikur | 1992 Barcelona | |
Einar Örn Jónsson | Handknattleikur | 2004 Aþena | |
Ellen Ingvadóttir | Sund, 100m-, 200m bringusund, 200m fjórsund | 1968 Mexico City | |
Erla Dögg Haraldsdóttir | Sund, 100m bringusund, 200m fjórsund | 2008 Peking | |
Eva Hannesdóttir | Sund, 100m skriðsund, 4x100m fjórsund | 2012 London | |
Eygló Ósk Gústafsdóttir | Sund, 100m-, 200m baksund, 200m fjórsund, 4x100m fjórsund | 2012 London | |
Finnbjörn Þorvaldsson | Frjálsíþróttir, 100m, 4x100m boðhlaup, langstökk | 1948 London | |
Finnur Garðarsson | Sund, 100m-, 200m skriðsund | 1972 Munchen | |
Freyr Gauti Sigmundsson | Júdó -95kg. | 1992 Barcelona | |
Friðrik Guðmundsson | Frjálsíþróttir, kringlukast | 1952 Helsinki | |
Friðrik Guðmundsson | Sund, 400m-, 1500m skriðsund | 1972 Munchen | |
Geir Hallsteinsson | Handknattleikur | 1972 Munchen | |
Gísli Blöndal | Handknattleikur | 1972 Munchen | |
Gísli Þorsteinsson | Júdó, léttmillivigt | 1976 Montreal | |
Guðjón Guðmundsson | Sund, 100m-, 200m bringusund | 1972 Munchen | |
Guðmundur Helgason | Lyftingar, -90kg. | 1980 Moskva | |
Guðmundur Hermannsson | Frjálsíþróttir, kúluvarp | 1968 Mexico City | |
Guðmundur Ingólfsson | Sund, 100m baksund | 1948 London | |
Guðmundur Lárusson | Frjálsíþróttir, 400m-, 800m hlaup | 1952 Helsinki | |
Guðrún Fema Ágústsdóttir | Sund, 100m-, 200m bringusund | 1984 Los Angeles | |
Gunnar Andrésson | Handknattleikur | 1992 Barcelona | |
Gunnar Gunnarsson | Handknattleikur | 1992 Barcelona | |
Gunnsteinn Skúlason | Handknattleikur | 1972 Munchen | |
Gústaf Bjarnason | Handknattleikur | 1992 Barcelona | |
Gylfi Gylfason | Handknattleikur | 2004 Aþena | |
Halldór Guðbjörnsson | Júdó, -71kg. | 1980 Moskva | |
Haukur Clausen | Frjálsíþróttir, 100m-, 200m hlaup, 4x100m boðhlaup | 1948 London | |
Helga Halldórsdóttir | Frjálsíþróttir, 400m grindarhlaup | 1988 Seoul | |
Helga Sigurðardóttir | Sund, 50m skriðsund | 1992 Barcelona | |
Héðinn Gilsson | Handknattleikur | 1992 Barcelona | |
Hjalti Einarsson | Handknattleikur | 1972 Munchen | |
Hjalti Guðmundsson | Sund, 100m bringusund | 2000 Sydney | |
Hrafnhildur Lúthersdóttir | Sund, 200m bringusund, 4x100m fjórsund | 2012 London | |
Hörður Haraldsson | Frjálsíþróttir, 100m-, 200m hlaup | 1952 Helsinki | |
Ingi Þorsteinsson | Frjálsíþróttir, 110m-, 400m grindarhlaup | 1952 Helsinki | |
Ingi Þór Jónsson | Sund, 100m-, 200m skriðsund, 100m flugsund | 1984 Los Angeles | |
Ísleifur Friðriksson | Siglingar, háseti á 470 international | 1988 Seoul | |
Jaliesky Garcia Padron | Handknattleikur | 2004 Aþena | |
Jens Einarsson | Handknattleikur | 1984 Los Angeles | |
Jóel Sigurðsson | Frjálsíþróttir, spjótkast | 1948 London | |
Jóhannes Jósefsson | Glíma, grísk-rómversk | 1908 London | |
Jón D. Jónsson | Sundknattleikur | 1936 Berlín | |
Jón Diðriksson | Frjálsíþróttir, 800m-, 1500m hlaup | 1980 Moskva | |
Jón Halldórsson | Frjálsíþróttir,100m hlaup | 1912 Stokkhólmur | |
Jón Hj. Magnússon | Handknattleikur | 1972 Munchen | |
Jón Ingi Guðmundsson | Sundknattleikur | 1936 Berlín | |
Jón Pétursson | Frjálsíþróttir, hástökk | 1960 Róm | |
Jón Pétursson | Siglingar, háseti á 470 international | 1984 Los Angeles | |
Jónas O. Halldórsson | Sundknattleikur | 1936 Berlín | |
Júlíus Jónasson | Handknattleikur | 1992 Barcelona | |
Karl Vilmundarson | Frjálsíþróttir, tugþraut | 1936 Berlín | |
Karl Þráinsson | Handknattleikur | 1988 Seoul | |
Kári Kristján Kristjánsson | Handknattleikur | 2012 London | |
Kári Steinn Karlsson | Frjálsíþróttir, maraþon | 2012 London | |
Kolbeinn Gíslason | Júdó, opinn flokkur | 1984 Los Angeles | |
Kolbrún Ólafsdóttir | Sund, 100m baksund | 1948 London | |
Konráð Ólavsson | Handknattleikur | 1992 Barcelona | |
Kristján Andrésson | Handknattleikur | 2004 Aþena | |
Kristján Harðarson | Frjálsíþróttir, langstökk | 1984 Los Angeles | |
Kristján Jóhannsson | Frjálsíþróttir, 5000m-, 10.000m hlaup | 1952 Helsinki | |
Kristján Vattnes Jónsson | Frjálsíþróttir, spjótkast | 1936 Berlín | |
Lára Sveinsdóttir | Frjálsíþróttir, hástökk | 1972 Munchen | |
Leiknir Jónsson | Sund, 100m-, 200m bringusund | 1968 Mexico City | |
Lilja Guðmundsdóttir | Frjálsíþróttir, 800m-, 1500m hlaup | 1976 Montreal | |
Logi Einarsson | Sundknattleikur | 1936 Berlín | |
Logi Eldon Geirsson | Handknattleikur | 2008 Peking | |
Logi Jes Kristjánsson | Sund, 100m baksund | 1996 Atlanta | |
Magnús Aron Hallgrímsson | Frjálsíþróttir, kringlukast | 2000 Sydney | |
Magnús B. Pálsson | Sundknattleikur | 1936 Berlín | |
Magnús Már Ólafsson | Sund, 50m-, 100m-, 200m skriðsund | 1988 Seoul | |
Martha Ernstdóttir | Frjálsíþróttir, maraþonhlaup | 2000 Sydney | |
Óðinn Björn Þorsteinsson | Frjálsíþróttir, kúluvarp | 2012 London | |
Ólafur Benediktsson | Handknattleikur | 1972 Munchen | |
Ólafur H. Jónsson | Handknattleikur | 1972 Munchen | |
Óskar Jónsson | Frjálsíþróttir, 800m-, 1500m hlaup | 1948 London | |
Patrekur Jóhannesson | Handknattleikur | 1992 Barcelona | |
Páll Ólafsson | Handknattleikur | 1988 Seoul | |
Pétur Fr. Sigurðsson | Frjálsíþróttir, 100m hlaup | 1952 Helsinki | |
Pétur Rögnvaldsson | Frjálsíþróttir, 110m grindahlaup | 1960 Róm | |
Pétur Snæland | Sundknattleikur | 1936 Berlín | |
Ragnar Guðmundsson | Sund, 400m-, 1500m skriðsund | 1988 Seoul | |
Reynir Sigurðsson | Frjálsíþróttir, 400m hlaup | 1948 London | |
Ríkarður Ríkarðsson | Sund, 100m flugsund, 100m skriðsund | 2000 Sydney | |
Roland Eradze | Handknattleikur | 2004 Aþena | |
Róbert Sighvatsson | Handknattleikur | 2004 Aþena | |
Rúnar Sigtryggsson | Handknattleikur | 2004 Aþena | |
Rögnvaldur K. Sigurjónsson | Sundknattleikur | 1936 Berlín | |
Sigmar Þröstur Óskarsson | Handknattleikur | 1992 Barcelona | |
Sigrún Brá Sverrisdóttir | Sund, 200m skriðsund | 2008 Peking | |
Sigurbergur Sigsteinsson | Handknattleikur | 1972 Munchen | |
Sigurður Bjarnason | Handknattleikur | 1992 Barcelona | |
Sigurður Einarsson | Handknattleikur | 1972 Munchen | |
Sigurður Jónsson | Sund, 200m bringusund | 1948 London | |
Sigurður Ólafsson | Sund, 200m-, 400m-, 1500m skriðsund | 1976 Montreal | |
Sigurður Sigurðsson | Frjálsíþróttir, hástökk, þrístökk | 1936 Berlín | |
Sigurður Sveinsson | Handknattleikur | 1984 Los Angeles | |
Sigurður Þ. Jónsson | Sund, 200m bringusund | 1948 London | |
Sigurjón Pétursson | Glíma, grísk-rómversk | 1912 Stokkhólmur | |
Stefán Gunnarsson | Handknattleikur | 1972 Munchen | |
Stefán Sörensson | Frjálsíþróttir, þrístökk | 1948 London | |
Steinar Birgisson | Handknattleikur | 1984 Los Angeles | |
Sturla Ásgeirsson | Handknattleikur | 2008 Peking | |
Svavar Markússon | Frjálsíþróttir, 800m-, 1500m hlaup | 1960 Róm | |
Sveinn Ingvarsson | Frjálsíþróttir, 100m hlaup | 1936 Berlín | |
Trausti Eyjólfsson | Frjálsíþróttir, 4x100m boðhlaup | 1948 London | |
Tryggvi Helgason | Sund, 100m-, 200m bringusund | 1984 Los Angeles | |
Úlfar Þórðarson | Sundknattleikur | 1936 Berlín | |
Vala Flosadóttir | Frjálsíþróttir, stangarstökk | 2000 Sydney | |
Valdimar Grímsson | Handknattleikur | 1992 Barcelona | |
Vernharð Þorleifsson | Júdó, millivigt | 1996 Atlanta | |
Viðar Guðjohnsen | Júdó, millivigt | 1976 Montreal | |
Viðar Símonarson | Handknattleikur | 1972 Munchen | |
Vignir Svavarsson | Handknattleikur | 2012 London | |
Vilborg Sverrisdóttir | Sund, 100m-, 200m skriðsund | 1976 Montreal | |
Vilhjálmur Vilmundarson | Frjálsíþróttir, kúluvarp | 1948 London | |
Þorbergur Aðalsteinsson | Handknattleikur | 1984 Los Angeles | |
Þorbjörn Jensson | Handknattleikur | 1984 Los Angeles | |
Þorsteinn Hjálmarsson | Sundknattleikur | 1936 Berlín | |
Þorsteinn Leifsson | Lyftingar, -82,5kg. | 1980 Moskva | |
Þorsteinn Löve | Frjálsíþróttir, kringlukast | 1952 Helsinki | |
Þorsteinn Þorsteinsson | Frjálsíþróttir, 800m hlaup | 1972 Munchen | |
Þórdís Árnadóttir | Sund, 200m bringusund | 1948 London | |
Þórður Guðmundsson | Sundknattleikur | 1936 Berlín | |
Þórunn Alfreðsdóttir | Sund, 100m-, 200m flugsund | 1976 Montreal |