Lóa Margrét Hauksdóttir (18 ára) úr BF Boganum í Kópavogi vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki á Íslandsmeistaramótinu utandyra 20 júní síðastliðinn í Fagralundi Kópavogi.
Það eitt og sér myndi þykja frábær árangur, en að gera það gegn andstæðingi sem er reglubundið í topp 8 á EM og er búin að vinna titilinn utandyra síðustu 8 ára í röð!!! Gerir afrekið sögulegt. Lóa braut lengstu sigurröð Íslandsmeistaratitla utandyra í sögu íþróttarinnar (óháð því hvað keppnisgrein um ræðir) þegar hún vann titilinn á ÍM um helgina
Íslandsmeistarar Kvenna – Meistaraflokkur Berboga
Berbogi Kvenna Utandyra
2026 Lóa Margrét Hauksdóttir – BF Boginn – Kópavogi
2025 Guðbjörg Reynisdóttir – BF Hrói Höttur – Hafnarfirði
2024 Guðbjörg Reynisdóttir – BF Hrói Höttur – Hafnarfirði
2023 Guðbjörg Reynisdóttir – BF Hrói Höttur – Hafnarfirði
2022 Guðbjörg Reynisdóttir – BF Hrói Höttur – Hafnarfirði
2021 Guðbjörg Reynisdóttir – BF Hrói Höttur – Hafnarfirði
2020 Guðbjörg Reynisdóttir – BF Hrói Höttur – Hafnarfirði
2019 Guðbjörg Reynisdóttir – BF Hrói Höttur – Hafnarfirði
2018 Guðbjörg Reynisdóttir – BF Hrói Höttur – Hafnarfirði
Undankeppni ÍM berboga á laugardegi:
Lóa var í öðru sæti í undankeppni ÍM í berboga meistaraflokki kvenna með 522 stig sem er aðeins 6 stigum frá Íslandsmeti U21 og 9 stigum frá Íslandsmetinu í meistaraflokki kvenna. Félagsliðið hennar skoraði yfir eldra Íslandsmeti, en samkeppnin var slík að það var ekki nóg til að taka metið af því að félagslið Akurs sló einnig metið bara með eilítið hærra skor.
Keppni um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn berboga kvenna:
Lóa vann sig nokkuð örugglega í gegnum alla útsláttarleiki berboga kvenna á mótinu og meirað segja Heba Róbertsdóttir liðsfélagi Lóu náði ekki einu sinni að hægja á henni í undanúrslitum þar sem hún tók 6-0 sigur.
Lóa mætti því Guðbjörgu Reynisdóttir úr Bogfimifélaginu Hróa Hetti í Hafnarfirði í gull úrslitaleiknum, sem var að reyna að verja Íslandsmeistaratitil sinn í 9 sinn í röð og lengja metasigurröðina sína. Lóa tók fyrstu lotu úrslitaleiksins 25-22 og 2-0 forystu, og gerði það sama í annarri lotu með 21-18 og leiddi 4-0. Guðbjörg tók þriðju lotu 26-22 og staðan í leiknum því 4-2. Í fjórðu lotu náði Lóa svo aftur sigrinum 24-20 og leiknum því lokið 6-2 (10 stig í pottinum sá sem er fyrr að ná 6 stigum vinnur). Lóa tók því sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki og braut lengstu sigurröð Íslandsmeistaratitla í sögu íþróttarinnar utandyra. Heba Róbertsdóttir BFB Kópavogur tók bronsið á móti Heike V. Kristínardóttir úr ÍFA Akureyri.
Keppni um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn berboga óháð kyni:
Í keppni um Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni, þar sem allir keppa óháð kyni mætti Lóa aftur Guðbjörgu en í þetta sinn í 8 manna úrslitum og tók aftur sigurinn en í þetta sinn 6-0!. Lóa hélt því í undanúrslit þar sem að hún mætti núverandi Íslandsmeistara karla Izaar Arnar Þorsteinssyni frá ÍF Akur Akureyri, en þar var eini tap leikur Lóu á mótinu þar sem Izaar tók sigurinn 6-2. Lóa fór því í brons úrslitaleikinn óháð kyni.
Lóa Margrét Hauksdóttir tók svo bronsið óháð kyni 6-2 gegn Hebu Róbertsdóttir báðar úr BFB Kópavogi (og báðar hafa unnið til einstaklingsverðlaun á Evrópubikarmótum og EM ungmenna nokkrum sinnum á síðustu 4 árum, þannig að enginn skortur á samkeppni í berboganum á Íslandi)
Keppni um Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni berboga:
Aðeins tvo efstu lið í undankeppni ÍM halda áfram í útsláttarleiki í félagsliða og fara því beint í gull úrslitaleik. Þar mættust lið Bogfimifélagsins Bogans í Kópavogi 2026 sem vann félagsliðatitilinn 2024 og 2025, og Íþróttafélagsins Akur á Akureyri sem hefur aldrei unnið titilinn utandyra. Liðin voru mjög jöfn í undankeppni en Akureyringar voru aðeins sterkari (1607-1568), en bæði liðin skoruðu yfir eldra Íslandsmeti.
Kópavogsmenn tóku fyrstu lotuna 40-35 og 2-0 forystu í leiknum. Akureyringar náðu sigri í annari lotu með 1 stigi 40-39 og jöfnuðu leikinn 2-2. Liðin jöfnuðu svo þriðju lotu 46-46 og staðan 3-3 og jöfnuðu svo aftur loka lotuna 41-41 og leikurinn endaði því í jafntefli 4-4. Því þurfti bráðabana til þess að ákvarða hvort liðið myndi sigra leikinn og taka titilinn heim, 1 ör per íþróttamann hæst skorandi liðið vinnur. Þar tóku Akureyringar sigurinn með minnsta mögulega mun, einu stigi 24-23 og sigruðu bráðabanann. Lóu tók því silfrið félagsliðakeppni.
Samantekt af árangri:
- Íslandsmeistari berboga kvenna – Lóa Margrét Hauksdóttir – BF Boginn Kópavogur
- Silfur Guðbjörg Reynisdóttir BFHH
- Brons Heba Róbertsdóttir BFB
- Íslandsmeistari berboga óháð kyni – Helgi Már Hafþórsson – ÍF Akur Akureyri
- Silfur Izaar Arnar Þorsteinsson ÍFA
- Brons Lóa Margrét Hauksdóttir BFB
- Silfur félagsliðakeppni
- Lóa Margrét Hauksdóttir BFB 522 stig var aðeins 6 stigum frá Íslandsmeti U21 og Guðbjörg Reynisdóttir BFHH 523 sem voru báðar innan við 10 stigum frá Íslandsmetinu í meistaraflokki kvenna sem er 531 stig.
Mögulegt er að sjá nánari upplýsingar um ÍM í fréttum á bogfimi.is







