Emma Rakel í 25 sæti einstaklinga og 14 sæti liða á NM ungmenna

Emma Rakel Björnsdóttir úr ÍF Akur á Akureyri keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og endaði í 25 sæti í einstaklingskeppni og 14 sæti í liðakeppni.

Útsláttarleikir einstaklinga

Emma stóð sig fínt í undankeppni NM ungmenna og endaði í 27 sæti með 375 stig í sveigboga kvenna U18 sem var fjölmennasta keppnisgrein NUM 2026.

Í 32 manna úrslitum mættust Emma og Ida Ringsmose Feddersen frá Danmörku sem var í 6 sæti undankeppni NM. Emma

Emma tók aðra lotu leiksins 26-25 og staðan jöfn 2-2. Sú Danska tók svo þriðju lotu 25-22 og fjórðu lotu 26-22 og tók því sigurinn í leiknum 6-2. Emma endaði því í 25 sæti í einstaklingskeppni á NUM 2026.

Útsláttarleikir liða

Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna og Emma endaði því með liðsfélaga sínum úr ÍF Akur Evu Kristínu Sólmundsdóttur í liði 1 frá Íslandi sem var í 16 sæti í undankeppni NM (hvert land má skipa mörgum liðum á NM).

Í fyrsta leik liða (24 liða úrslit) mættu stelpurnar liði 7 frá Finnlandi 17 sæti í undankeppni NM. Stelpurnar jöfnuðu fyrstu lotuna 25-25, unnu aðra lotuna 28-24, Finnarnir svöruðu með því að taka þriðju lotu 35-33 og leikurinn því jafn 3-3 og aðeins ein lota eftir af leiknum (það lið sem er fyrr að ná 5 stigum vinnur leikinn, 4 lotu leikur, 2 stig fyrir að vinna lotu, 1 stig fyrir að jafna lotu). Stelpurnar þurftu því að vinna síðustu lotuna ef lotan endaði jöfn yrði leikurinn jafn og þyrfti bráðbana. En stelpurnar náðu sigrinum  í lotunni 23-17 og því í leiknum 5-3 og héldu því áfram í 16 liða úrslit.

Í 16 liða úrslitum mættu stelpurnar aðalliði Svíþjóðar sem var efst í undankeppni NM og talið sigurstranglegasta liðið á mótinu. Svíjarnir tóku fyrstu lotu 35-29, aðra lotu 34-20 og þriðju lotu 35-28 og gáfu í raun lítið færi á sér gegn stelpunum okkar. Svíjarnir tóku því sigurinn 6-0 og stelpurnar okkar enduðu í 14 sæti.

Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.

Ragnar, Þórdís og Lóa skara fram úr – Fjórir Norðurlandameistaratitlar og tvö Norðurlandamet á NM ungmenna

Áfram Ísland!!