Helgi Már átti frábært ár í berboga. Helgi sló Íslandsmetið í berboga karla innandyra með 518 stig og utandyra með 592 stig til viðbótar við tvö Íslandsmet liða, eitt með landsliði á EM og hitt með félagsliði á ÍM á árinu.
Helgi vann Íslandsbikarmótaröðina bæði innandyra og utandyra með bestu frammistöðu á Bikarmótum tímabilsins og tók því báða Bikarmeistaratitlana. Helgi vann Íslandsmeistaratitil karla innandyra og utandyra, og vann Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni (unisex) utandyra en þurfti að sætta sig við brons um Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni innandyra þar sem hann tapaði undanúrslitum á móti ríkjandi Evrópubikarmeistara U21. Engin skortur á samkeppni þar innanlands 😅
Helgi náði einnig flottum niðurstöðum á alþjóðlegum vettvangi. Á EM innandyra í febrúar endaði hann í topp 20 í einstaklingskeppni ásamt því að komast í 8 liða úrslit bæði með berboga karla liði Íslands og berboga blandaða liðinu (par 1kk+1kvk).
Í október á Swiss Open heimsbikarmótinu í Afreksíþróttamiðstöð heimssambandsins í Ólympíuborginni Lausanne gerði Helgi betur og komst í 8 manna úrslit heimsbikarmótsins í einstaklingskeppni.
Til að setja þetta fram á annan veg sem gefur góða mynd af hve gífurlega sterkur árangur Helga var á Íslandi á árinu: Bikarmeistari 2 af 2 unnir. Íslandsmet einstaklings 2 af 2 slegin. Íslandsmeistaratitlar karla 2 af 2 unnir. Íslandsmeistaratitlar óháð kyni (unisex) 1 af 2 unnir (En tók bronsið og eini leikurinn sem Helgi tapaði þar var gegn ríkjandi Evrópubikarmeistara kvenna U21 og brons verðlaunahafa kvenna á EM U21 innandyra). Þannig að við getum kallað það eins nálægt fullkominni frammistöðu á innlendum vettvangi og mögulegt er.
Þetta er í fyrsta sinn sem Helgi er valin Berbogamaður ársins. Helgi á fertugs afmæli í desember. https://archery.is/?s=helgi+m%C3%A1r
Berbogamaður ársins
2026 Helgi Már Hafþórsson – ÍF Akur – Akureyri
2025 Baldur Freyr Árnason – BF Boginn – Kópavogi
2024 Baldur Freyr Árnason – BF Boginn – Kópavogi
2023 Izaar Arnar Þorsteinsson – ÍF Akur – Akureyri
2022 Izaar Arnar Þorsteinsson – ÍF Akur – Akureyri
2021 Izaar Arnar Þorsteinsson – ÍF Akur – Akureyri
2020 Izaar Arnar Þorsteinsson – ÍF Akur – Akureyri





