Þórdís Unnur Bjarkadóttir í 9 sæti á Heimsbikarmóti U21 í Lúxemborg

Screenshot

Þórdís Unnur Bjarkadóttir úr BFB í Kópavogi hafnaði í 9 sæti í trissuboga U21 kvenna á öðru Heimsbikarmóti innandyra á tímabilinu (Indoor World Series Stage 2), sem fór fram í Strassen í Lúxemborg 20-22 nóvember 2026

Undankeppni

Í undankeppni (18m) stóð Þórdís sig flott og skoraði 577 stig. Þórdís endaði í 8 sæti í undankeppninni, en aðeins topp 16 héldu áfram í útsláttarkeppni á heimsbikarmótinu.

Útsláttarkeppni

Í 16 manna úrslitum mætti Þórdís Ítalanum Giorgiu Montaldi sem var í 9 sæti undankeppni með 570 stig. Þórdís skaut vel og náði 141 stigi í leiknum (28, 29, 29, 28, 27), en Ítalinn átti frábæran leik og hitti nánast fullkomið skor 149 stig (29, 30, 30, 30, 30) og vann því leikinn 149–141. Þórdís var því slegin út og endaði í 9 sæti á heimsbikarmótinu, þrátt fyrir að gamlar Franskar konur gargi á hana að ástæðulausu 😅

Vert er að geta að Þórdís endaði í 4 sæti á fyrsta heimsbikarmótinu í Sviss í síðasta mánuði og Þórdís stefnir einnig á að keppa á heimsbikarmótinu í Nimes. Þórdís er búin að setja sig í góða stöðu til að enda hátt á U21 heimslista 2026.

Stutt samantekt:

  • Hvar: Heimsbikarmót 2 Strassen Lúxemborg (World Series GT Open)
  • Hver: Þórdís Unnur Bjarkadóttir – BF Boginn Kópavogi
  • Í hverju: Trissuboga U21 kvenna
  • Gengi í undankeppni: 8 sæti í undankeppni með 577 stig (Topp 16 vinna þátttökurétt á mótið)
  • Gengi í útsláttarleikjum: Slegin út í 16 manna úrslitum 141-149 af Giorgiu Montaldi frá Ítalíu
  • Loka niðurstaða: 9 sæti