Lóa Margrét Hauksdóttir Berbogakona ársins 2026

Lóa Margrét átti rosalegt ár 2026, Íslandsmeistari, Norðurlandameistari, Evrópumeistari, Evrópubikarmeistari og silfur á heimsbikarmóti. Samtals vann Lóa 9 sinnum til verðlauna í landsliðsverkefnum á árinu, ásamt Íslandsmetum titlum og fleiru.

Lóa byrjaði árið í Búlgaríu í febrúar á því að vinna Gull í liðakeppni á EM U21 innandyra og tók brons í parakeppni, en rétt missti af bronsinu í einstaklingskeppni þar sem hún endaði í 4 sæti. Á Evrópubikarmóti U21 í júní gekk þó betur og hún tók gullið í einstaklingskeppni og silfur í liðakeppni á EBU.

Lóa vann sinn fyrsta Norðurlandameistaratitil í júlí í Finnlandi. Á EM U21 utandyra á Ítalíu vann Lóa brons í einstaklingskeppni og silfur í liðakeppni, sem eru í báðum tilfellum fyrstu verðlaun Íslands á EM í utandyra bogfimi í sögu íþróttarinnar. Lóa var með hæsta samanlagða skor allra keppenda á ungmennamótum Evrópusambandsins á árinu var og hreppti því Evrópubikarmeistaratitil U21 í júlí frá World Archery Europe.

Innanlands átti Lóa einnig góðu gengi að fagna og vann alla Íslandsmeistaratitla U21, ásamt því að taka Íslandsmeistaratitilinn í meistaraflokki utandyra og braut með því lengstu óbrotnu sigurröð Íslandsmeistaratitla í sögu íþróttarinnar sem Guðbjörg Reynisdóttir átti síðustu 8 ár í röð. Lóa gerði sér einnig lítið fyrir og tók Íslandsmetin í U21 og meistaraflokki utandyra.

Lóa lauk svo árinu sínu í alþjóðlegri keppni í október á Swiss Open Heimsbikarmótinu í meistaraflokki í afrekíþróttamiðstöð heimssambandsins World Archery í Ólympíuborginni Lausanne. Þar sem Lóa hreppti silfur eftir jafntefli og bráðabana í gull úrslitum um sigur. Það eru einnig fyrstu verðlaun sem Íslendingur hefur unnið til á heimsbikarmóti í meistaraflokki í sögu íþróttarinnar.

Þetta er í fyrsta sinn sem Lóa er valin berbogakona ársins. Lóa er 18 ára gömul. https://archery.is/?s=l%C3%B3a+Margr%C3%A9t

Berbogakona ársins
2026 Lóa Margrét Hauksdóttir – BF Boginn – Kópavogi
2025 Heba Róbertsdóttir – BF Boginn – Kópavogi
2024 Guðbjörg Reynisdóttir – BF Hrói Höttur – Hafnarfirði
2023 Guðbjörg Reynisdóttir – BF Hrói Höttur – Hafnarfirði
2022 Guðbjörg Reynisdóttir – BF Hrói Höttur – Hafnarfirði
2021 Guðbjörg Reynisdóttir – BF Hrói Höttur – Hafnarfirði
2020 Guðbjörg Reynisdóttir – BF Hrói Höttur – Hafnarfirði