Heba Íslandsmeistari í meistaraflokki kvenna í annað sinn

Heba Róbertsdóttir úr BF Boganum (BFB) vann Íslandsmeistaratitil kvenna og tók silfur um Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni og silfur í félagsliðakeppni á Íslandsmeistaramótinu í meistaraflokki berboga sem haldið var í Bogfimisetrinu 12 apríl

Heba vann Íslandsmeistaratitil kvenna í annað sinn en hún vann titilinn fyrst árið 2023 þegar hún braut lengstu sigurröð Íslandsmeistaratitla í sögu íþróttarinnar sem Guðbjörg Reynisdóttir átti.

Heba byrjaði 2022 í kringum ÍM það ár og hún komst ekki á ÍM innandyra 2024 og 2025 af óviðráðanlegum orsökum. Hún hefur því unnið kvenna titilinn á öllum (báðum) ÍM innandyra sem hún hefur tekið þátt á.

Guðbjörg Reynisdóttir í BF Hrói Höttur (BFHH) vann ekki Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki á ÍM. Það er í fyrsta sinn frá því að berbogi var tekin inn sem keppnisgrein á Íslandsmeistaramótum árið 2018 sem Guðbjörg vinnur ekki titil. 8 ár í röð eða 17 Íslandsmeistaramót í röð (inni/úti/víðavangi) hefur Guðbjörg hampað að minnsta kosti einum titli innandyra, samtals 16 af 17 Íslandsmeistaratitlum kvenna. Eina skiptið sem hún tapaði kvenna titlinum gegn Hebu 2023 þá vann Guðbjörg Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni (fyrsta árið sem sá titill var veittur).

Heba og Guðbjörg eru báðar verulega sterkar og hafa báðar unnið eða keppt í brons/gull úrslitum EM í einstaklingskeppni og liðakeppni. Til viðbótar við nýliðann Heike sem tók sinn fyrsta titil og var sú sem sló Guðbjörgu út í bæði keppni kvenna og keppni óháð kyni. Bætum svo við Lóu sem vann silfur í U21 á EM 2024 og keppti um bronsið á EM U21 í febrúar sem endaði í 4 sæti á ÍM en vann U21 titilinn. Það vantar því ekki upp á samkeppnina og erfiðleikastigið í berboga kvenna á ÍM í dag.

Íslandsmeistaratitill kvenna á ÍM Meistaraflokki Berboga

Í gull úrslitum kvenna mættust Heba Róbertsdóttir BFB og Heike Viktoria Kristínardóttir ÍFA.

Heba átti frekar auðvelda vegferð í gull úrslitaleikinn í gegnum 8 manna úrslit og undanúrslit. Heike vann örugglega í 8 manna úrslitum en í undanúrslitum tók Heike óvæntann sigur 6-4 í mjög jöfnum leik gegn Guðbjörgu og hélt því áfram í gull úrslitaleik kvenna gegn Hebu.

Heba og Heike áttu gífurlega spennandi gull úrslita leik, Heike vann fyrstu lotuna 25-18 og tók því 2-0 forystu. Heba svaraði í annarri lotu með 24-22 stig og jafnaði leikinn. Heba tók einnig þriðju lotu með stórglæsilegri umferð frá þeim báðum 29-27, en Heba tók lotuna og 2 stigin sem því fylgja og snéri leiknum því í 4-2 fyrir Hebu. Heike jafnaði leikinn svo með því að sigra fjórðu lotu 25-21 og staðan 4-4 og aðeins síðasta lota leiksins eftir, sá sem vinnur lotuna hreppir titilinn, sá sem tapar fær silfrið og ef þær jafna þá er bráðabani. Þar tók Heba sigurinn á síðustu örinni. Vantaði 6 to tie, 7+ to win og hún skoraði glæsilega 10, lotan 28-24 fyrir Hebu og því einnig sigurinn í úrslitaleiknum og annar Íslandsmeistaratitill Hebu innandyra í jafnmörgum þátttökum á ÍM innandyra.

Guðbjörg Reynisdóttir BFHH mætti Lóu Margréti Hauksdóttur í brons úrslitum kvenna þar sem að Guðbjörg tók öruggann sigur 6-0.

Íslandsmeistaratitill allra (óháð kyni) á ÍM Meistaraflokki Berboga

Í gull úrslitaleik allra (óháð kyni) mættust aftur Heba Róbertsdóttir BFB og Heike Viktoria Kristínardóttir ÍFA.

Heba var í 4 sæti í undankeppni ÍM og átti nokkuð örugga vegferð í 16 og 8 manna úrslitum, þrátt fyrir að þurfa að mæta Lóu Margréti Hauksdóttir sem keppti um U21 brons á EM í febrúar, en Heba tók þar 6-2 sigur, enda vann Heba sjálf bronsið á U21 EM 2025. En í undanúrslitum (4 manna) mætti Heba honum Helga Má Þorsteinsson úr ÍFA Akureyri. Helgi var efstur í undankeppni ÍM og var talinn eilítið líklegri til að vinna leikinn, en miðað við skor þeirra í undakeppni yrði leikurinn mjög jafn. En þar tók Heba óvænt öruggann sigur 7-1. Ef Helgi hefði unnið leikinn hefðu Akureyringar átt tækifæri á því að taka öll stæðin á verðlaunapallinum óháð kyni 1,2,3, en Heba stoppaði það.

Heike var í 7 sæti í undankeppni ÍM og náði aftur “upset” sigri í 8 manna úrslitum gegn Guðbjörgu Reynisdóttir BFHH 6-0. Í undanúrslitum (4 manna) mætti Heike liðsfélaga sínum Izaar Arnar Þorsteinssyni sem var í þriðja sæti undankeppni ÍM og var einnig talinn sigurstranglegri, en Heika lét sér lítið segjast til og tók 6-2 sigur og Heike því búin að tryggja sig í gull úrslit um Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni.

Það endaði því svo að í gull úrslitum um titilinn óháð kyni mættust Heba og Heike aftur, sömu keppendur og kepptu um titilinn í kvenna, þar sem karlarnir náðu ekki að stöðva þær.

Í úrslitaleiknum tók Heba fyrstu lotuna 24-22 og því 2-0 forystu. Heike jafnaði 2-2 með því að taka aðra lotu 22-20. Heike tók forystu í þriðju umferð 4-2 með 27-25 sigri í lotunni og Heike tók svo sigurinn í gull úrslitaleiknum 6-2 með sigri í fjórðu lotu 23-22. Heba tók því silfrið óháð kyni.

Í brons úrslitum vann Helgi Már Hafþórsson bronsleikinn 7-1 gegn Izaar Arnari Þorsteinssyni báðir úr ÍFA .

Íslandsmeistaratitill félagsliða á ÍM Meistaraflokki Berboga

Akureyringar og Kópavogsmenn áttust við í gull úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitil félagsliða.

  • ÍF Akur ÍFA á Akureyri – Liðsmenn
    • Izaar Arnar Þorsteinsson
    • Helgi Már Hafþórsson
    • Heike Viktoria Kristínardóttir
  • BF Boginn BFB í Kópavogi – Liðsmenn
    • Lóa Margrét Hauksdóttir
    • Heba Róbertsdóttir
    • Sveinn Sveinbjörnsson

Akureyringar voru taldir sigurstranglegri þar sem að í undankeppni ÍM voru þeir efstir og ekki langt frá Íslandsmetinu í félagsliðakeppni ásamt því að þeir unnu félagsliðatitilinn á ÍM á síðasta ári og voru því að verja titilinn til að halda honum á Akureyri.

Í gull úrslitaleiknum tóku Kópavogsmenn fyrstu lotu leiksins 46-35 og því 2-0 forystu í leiknum. Í annarri lotu jöfnuðu Akureyringar með 44-40 sigri í lotunni þrátt fyrir að lenda í tímaþröng vegna guls spjalds, og staðan 2-2. Akureyringar tóku þriðju lotu 45-38 og leiddu leikinn því 4-2. Í fjórðu og síðustu lotu leiksins þurftu Kópavogsmenn að vinna lotuna til að jafna úrslitaleikinn og knýja fram bráðabana um titilinn, en Akureyringarnir tóku það ekki í mál og tóku naumann sigur 43-41 í síðustu lotu leiksins og tóku því einnig sigurinn í úrslitum 6-2 og Íslandsmeistaratitill félagsliða til Akureyrar annað árið í röð.

  • Heba Róbertsdóttir BFB – Íslandsmeistari kvenna
    • Annar titilinn í berboga kvenna meistaraflokki
  • Heba Róbertsdóttir BFB – silfur (óháð kyni)
  • Heba Róbertsdóttir BFB – silfur félagsliðakeppni

Nánar um mótið er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Íslandsmeistaramóti berboga 2026 Akur, Heike, Helgi og Heba taka titlana