Helgi Már Íslandsmeistari einstaklinga og félagsliða

Helgi Már Hafþórsson úr ÍF Akri Akureyri (ÍFA) vann Íslandsmeistaratitil karla, Íslandsmeistaratitil félagsliða og tók brons um Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni á Íslandsmeistaramótinu í meistaraflokki berboga sem haldið var í Bogfimisetrinu 12 apríl

Íslandsmeistaratitill karla á ÍM Meistaraflokki Berboga

Í gull úrslitum um Íslandsmeistaratitil karla mættust Helgi Már Hafþórsson ÍFA og Sveinn Sveinbjörnsson BFB.

Báðir unnu stig upp í gull úrslitaleikinn án þess að tapa stigi í 8 manna og undanúrslitum ÍM og því útlit fyrir kröfugann úrslitaleik.

Í gull úrslitaleiknum kom Helgi sterkari inn og vann fyrstu tvær loturnar 25-21 og 22-21 og leiddi því leikinn 4-0 á leið í þriðju lotu. Strákarnir jöfnuðu þriðju lotu 23-23 og staðan því 5-1 og Sveinn því í stöðu þar sem hann þurfti að vinna síðustu tvær lotur leiksins til að knýja fram bráðabana. En Helgi leyfði því ekki að gerast og vann fjórðu lotu leiksins 25-21, og tók því sigurinn í leiknum 7-1
(5 lotur *2 stig per lotu = 10 stig og því sá sem er fyrr að ná 6 stigum sem sigrar leikinn)
Helgi tók því Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki karla í fyrsta sinn á íþróttaferlinum. En þetta er annar titill hans í meistaraflokki þar sem hann vann titilinn óháð kyni 2025.

Brons úrslit karla voru óvænt harður bardagi. Þar mættust margfaldur Íslandsmeistari Izaar Arnar Þorsteinsson ÍFA og nýliðinn Dagur Ómarsson BFHH. Izaar var talinn mun líklegri til sigurs m.v. skor úr undankeppni og reynslu en Dagur náði næstum sigrinum í hörðum bardaga sem endaði með 6-4 sigri Izaars sem tók bronsið.

Íslandsmeistaratitill félagsliða á ÍM Meistaraflokki Berboga

Akureyringar og Kópavogsmenn áttust við í gull úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitil félagsliða.

  • ÍF Akur ÍFA á Akureyri – Liðsmenn
    • Izaar Arnar Þorsteinsson
    • Helgi Már Hafþórsson
    • Heike Viktoria Kristínardóttir
  • BF Boginn BFB í Kópavogi – Liðsmenn
    • Lóa Margrét Hauksdóttir
    • Heba Róbertsdóttir
    • Sveinn Sveinbjörnsson

Akureyringar voru taldir sigurstranglegri þar sem að í undankeppni ÍM voru þeir efstir og ekki langt frá Íslandsmetinu í félagsliðakeppni ásamt því að þeir unnu félagsliðatitilinn á ÍM á síðasta ári og voru því að verja titilinn til að halda honum á Akureyri.

Í gull úrslitaleiknum tóku Kópavogsmenn fyrstu lotu leiksins 46-35 og því 2-0 forystu í leiknum. Í annarri lotu jöfnuðu Akureyringar með 44-40 sigri í lotunni þrátt fyrir að lenda í tímaþröng vegna guls spjalds, og staðan 2-2. Akureyringar tóku þriðju lotu 45-38 og leiddu leikinn því 4-2. Í fjórðu og síðustu lotu leiksins þurftu Kópavogsmenn að vinna lotuna til að jafna úrslitaleikinn og knýja fram bráðabana um titilinn, en Akureyringarnir tóku það ekki í mál og tóku naumann sigur 43-41 í síðustu lotu leiksins og tóku því einnig sigurinn í úrslitum 6-2 og Íslandsmeistaratitill félagsliða til Akureyrar annað árið í röð.

  • Helgi Már Hafþórsson ÍFA – Íslandsmeistari karla
    • Fyrsti titill í berboga karla meistaraflokki
    • Annar titilinn í berboga meistaraflokki
  • ÍF Akur – Íslandsmeistari félagsliða
    • Annar titilinn í röð fyrir félagið innandyra berboga
    • Liðsmenn
      • Heike Viktoria Kristínardóttir – Fyrsti titill í félagsliðakeppni
      • Helgi Már Hafþórsson – Annar titilinn í félagsliðakeppni berboga
      • Izaar Arnar Þorsteinsson – Annar titilinn í félagsliðakeppni berboga
  • Helgi Már Hafþórsson ÍFA – brons (óháð kyni)

Nánar um mótið er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Íslandsmeistaramóti berboga 2026 Akur, Heike, Helgi og Heba taka titlana