Heike Viktoría Kristínardóttir í ÍF Akur á Akureyri (ÍFA) vann Íslandsmeistaratitilinn óháð kyn, vann Íslandsmeistaratitil félagsliða og tók silfur um Íslandsmeistaratitil kvenna á Íslandsmeistaramótinu í meistaraflokki berboga sem haldið var í Bogfimisetrinu 12 apríl
Heike kom sterk inn og vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á ÍM. Akureyringar voru ekki langt frá því að ná appelsínugulum 1,2,3 verðlaunapalli um Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni en 3 af topp fjórum þar voru úr Akri, en Heike tók titilinn.
Heike sló einnig Guðbjörgu Reynisdóttir út bæði í keppni um Íslandmeistaratitil kvenna og Íslandsmeistaratitil óháð kyni, sem er ekki lítið verk, enda Guðbjörg ekkert lamb að leika sér við. Guðbjörg var ekki langt frá Íslandsmetinu í berboga kvenna í undankeppni ÍM, en vann ekki Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki á ÍM í ár þar sem Heike sló hana út í keppni um báða titlana. Það er í fyrsta sinn frá því að berbogi var tekin inn sem keppnisgrein á Íslandsmeistaramótum árið 2018 sem Guðbjörg vinnur ekki titil. 8 ár í röð eða 17 Íslandsmeistaramót í röð (inni/úti/víðavangi) hefur Guðbjörg hampað að minnsta kosti einum titli innandyra
Guðbjörg, Heba og Lóa eru allar verulega sterkar og hafa allar unnið eða keppt í brons/gull úrslitum EM í einstaklingskeppni og liðakeppni. Til viðbótar við nýliðann Heike sem tók sinn fyrsta titil núna á ÍM og var sú sem sló Guðbjörgu út í bæði keppni kvenna og keppni óháð kyni og tók titilinn á móti Hebu óháð kyni.
Það vantar því ekki upp á samkeppnina og erfiðleikastigið í berboga kvenna á ÍM.
Íslandsmeistaratitill kvenna á ÍM Meistaraflokki Berboga
Í gull úrslitum kvenna mættust Heba Róbertsdóttir BFB og Heike Viktoria Kristínardóttir ÍFA.
Heba átti frekar auðvelda vegferð í gull úrslitaleikinn í gegnum 8 manna úrslit og undanúrslit, það var þó ekki hægt að segja það sama um Heike. Heike vann örugglega í 8 manna úrslitum en í undanúrslitum mættust Heike og Guðbjörg Reynisdóttir BFHH margfaldur Íslandsmeistari (16 af 17 Íslandsmeistaratitlum kvenna á ÍM) og efsti keppanda í skori í undankeppni kvenna á ÍM. (Gaman er að geta þess að Heike og Guðbjörg mættust í gull úrslitum ÍM 2025 þar sem Guðbjörg vann 6-0). En að þessu sinni tók Heike sigurinn 6-4 í mjög jöfnum leik og hélt því áfram í gull úrslitaleik kvenna.
Heba og Heike áttu gífurlega spennandi gull úrslita leik, Heike vann fyrstu lotuna 25-18 og tók því 2-0 forystu. Heba svaraði í annarri lotu með 24-22 stig og jafnaði leikinn. Heba tók einnig þriðju lotu með stórglæsilegri umferð frá þeim báðum 29-27, en Heba tók lotuna og 2 stigin sem því fylgja og snéri leiknum því í 4-2 fyrir Hebu. Heike jafnaði leikinn svo með því að sigra fjórðu lotu 25-21 og staðan 4-4 og aðeins síðasta lota leiksins eftir, sá sem vinnur lotuna hreppir titilinn, sá sem tapar fær silfrið og ef þær jafna þá er bráðabani. Þar tók Heba sigurinn á síðustu örinni. Vantaði 6 to tie, 7+ to win og hún skoraði glæsilega 10, lotan 28-24 fyrir Hebu og því einnig sigurinn í úrslitaleiknum og Heike tók því silfrið í keppni um kvenna titilinn.
Guðbjörg Reynisdóttir BFHH mætti Lóu Margréti Hauksdóttur í brons úrslitum kvenna þar sem að Guðbjörg tók öruggann sigur 6-0.
Íslandsmeistaratitill allra (óháð kyni) á ÍM Meistaraflokki Berboga
Í gull úrslitaleik allra (óháð kyni) mættust aftur Heba Róbertsdóttir BFB og Heike Viktoria Kristínardóttir ÍFA.
Heike var í 7 sæti í undankeppni ÍM og náði öruggum sigri í 16 manna úrslitum 6-0 gegn Atla Jónssyni úr LFF Reykjavík. Heike náði svo 6-0 “upset” sigri í 8 manna úrslitum aftur gegn Guðbjörgu Reynisdóttir BFHH Hafnarfirði sem var í öðru sæti undankeppni mótsins og því í fyrsta sinn sem Guðbjörg myndi ekki keppa um Íslandsmeistaratitil á ÍM í 8 ár. Í undanúrslitum (4 manna) mætti Heike liðsfélaga sínum Izaar Arnar Þorsteinssyni sem var í þriðja sæti undankeppni ÍM og var einnig talinn sigurstranglegri enda á hann lengstu sigurröð Íslandsmeistaratitla karla í íþróttinni. En Heika lét sér lítið segjast til og tók 6-2 sigur og Heike því búin að tryggja sig í gull úrslit um Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni.
Heba var í 4 sæti í undankeppni ÍM og átti nokkuð örugga vegferð í 16 og 8 manna úrslitum, þrátt fyrir að þurfa að mæta Lóu Margréti Hauksdóttir sem keppti um U21 brons á EM í febrúar, en Heba tók þar 6-2 sigur, enda vann Heba sjálf bronsið á U21 EM 2025. En í undanúrslitum (4 manna) mætti Heba honum Helga Má Þorsteinsson úr ÍFA Akureyri. Helgi var efstur í undankeppni ÍM og var talinn eilítið líklegri til að vinna leikinn, en miðað við skor þeirra í undakeppni yrði leikurinn mjög jafn. En þar tók Heba óvænt öruggann sigur 7-1. Ef Helgi hefði unnið leikinn hefðu Akureyringar átt tækifæri á því að taka öll stæðin á verðlaunapallinum óháð kyni 1,2,3.
Það endaði því svo að í gull úrslitum um titilinn óháð kyni mættust Heba og Heike aftur, sömu keppendur og kepptu um titilinn í kvenna, þar sem karlarnir náðu ekki að stöðva þær.
Í úrslitaleiknum tók Heba fyrstu lotuna 24-22 og því 2-0 forystu. Heike jafnaði 2-2 með því að taka aðra lotu 22-20. Heike tók forystu í þriðju umferð 4-2 með 27-25 sigri í lotunni og Heike tók svo sigurinn í gull úrslitaleiknum 6-2 með sigri í fjórðu lotu 23-22. Heike tók því Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni 2026.
Ótrúlega vel af sér vikið hjá Heike sem átti frábæra útsláttarkeppni og tók sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á íþróttaferlinum. Heike er á hraðri uppleið en var án vafa “underdog” og fáir sem hefðu veðjað á að hún myndi vinna einstaklingstitil í ár, því síður að hún væri að keppa um báða einstaklings titlana! En staðreyndin er sú að maður tapar öllum mótum sem maður tekur ekki þátt í og “underdog” sögurnar eru alltaf þær áhugaverðustu þar sem þær eru óvæntar og því vel vert að fjalla um þær þegar þær gerast.
Í brons úrslitum vann Helgi Már Hafþórsson bronsleikinn 7-1 gegn Izaar Arnari Þorsteinssyni báðir úr ÍFA .
Íslandsmeistaratitill félagsliða á ÍM Meistaraflokki Berboga
Akureyringar og Kópavogsmenn áttust við í gull úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitil félagsliða.
- ÍF Akur ÍFA á Akureyri – Liðsmenn
- Izaar Arnar Þorsteinsson
- Helgi Már Hafþórsson
- Heike Viktoria Kristínardóttir
- BF Boginn BFB í Kópavogi – Liðsmenn
- Lóa Margrét Hauksdóttir
- Heba Róbertsdóttir
- Sveinn Sveinbjörnsson
Akureyringar voru taldir sigurstranglegri þar sem að í undankeppni ÍM voru þeir efstir og ekki langt frá Íslandsmetinu í félagsliðakeppni ásamt því að þeir unnu félagsliðatitilinn á ÍM á síðasta ári og voru því að verja titilinn til að halda honum á Akureyri.
Í gull úrslitaleiknum tóku Kópavogsmenn fyrstu lotu leiksins 46-35 og því 2-0 forystu í leiknum. Í annarri lotu jöfnuðu Akureyringar með 44-40 sigri í lotunni þrátt fyrir að lenda í tímaþröng vegna guls spjalds, og staðan 2-2. Akureyringar tóku þriðju lotu 45-38 og leiddu leikinn því 4-2. Í fjórðu og síðustu lotu leiksins þurftu Kópavogsmenn að vinna lotuna til að jafna úrslitaleikinn og knýja fram bráðabana um titilinn, en Akureyringarnir tóku það ekki í mál og tóku naumann sigur 43-41 í síðustu lotu leiksins og tóku því einnig sigurinn í úrslitum 6-2 og Íslandsmeistaratitill félagsliða til Akureyrar annað árið í röð.
- Heike Viktoria Kristínardóttir ÍFA – Íslandsmeistari (óháð kyni)
- Fyrsti Íslandsmeistaratitill
- ÍF Akur – Íslandsmeistari félagsliða
- Annar titilinn í röð fyrir félagið innandyra berboga
- Liðsmenn
- Heike Viktoria Kristínardóttir – Fyrsti titill í félagsliðakeppni
- Helgi Már Hafþórsson – Annar titilinn í félagsliðakeppni berboga
- Izaar Arnar Þorsteinsson – Annar titilinn í félagsliðakeppni berboga
- Heike Viktoria Kristínardóttir ÍFA – Silfur kvenna
Nánar um mótið er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:
Íslandsmeistaramóti berboga 2026 Akur, Heike, Helgi og Heba taka titlana







