Guðbjörg Reynisdóttir Berbogakona ársins 2023

Guðbjörg Reynisdóttir í BF Hróa Hetti í Hafnarfirði var valin Berbogakona BFSÍ árið 2023. BFSÍ veitti viðurkenninguna fyrsta árið sem sambandið starfaði og Guðbjörg hefur hreppt titilinn öll árin (2020, 2021, 2022 og 2023). Valið fer fram á hlutlausann veg byggt á útreikningi árangurs keppenda á árinu á innlendum og erlendum mótum.

Það kom líklega fáum á óvart að Guðbjörg yrði fyrir valinu aftur á þessu ári þar sem að hún hefur verið yfirgnæfandi í sinni keppnisgrein á Íslandi frá árinu 2018.

  • Íslandsmeistari kvenna utandyra 6 ár í röð (frá 2018-2023)
  • Íslandsmeistari kvenna innandyra 5 ár í röð (frá 2018-2022)

En hún náði ekki að verja Íslandsmeistaratitil kvenna í meistaraflokki innandyra á árinu og með því endaði lengsta óbrotna sigurröð Íslandsmeistaratitla í íþróttinni, sem er ansi flottur titill til þess að hampa.

Guðbjörg vann einnig fyrsta Íslandsmeistaratitil óháðan kyni í berboga, en formlegum titli í þeirri keppni var bætt við á árinu 2023, meðal annars til þess að koma á móts við kynsegin íþróttfólk og til að búa til vettvang þar sem að konur og karlar geta keppt gegn hvert öðru formlega.

Guðbjörg vann einnig fyrstu formlegu Íslandsbikarmótaröð BFSÍ innandyra, Bikarmót BFSÍ í Íslandsbikarmótaröðinni voru einnig tengd af starfsfólki BFSÍ við opnu heimsmótaröð alþjóðabogfimisambandsins (Indoor World Series Open) og stig úr undankeppni Bikarmótana giltu því til stig á opna heimslistann. Þar endaði Guðbjörg í 2 sæti á World Series heimslista berboga kvenna þegar öllum mótum í heimsmótaröðinni var lokið.

Guðbjörg sló Íslandsmetið í meistaraflokki kvenna innandyra tvisvar á árinu og er fyrsta Íslenska konan til að skora yfir 500 stig í berboga.

Guðbjörg var skráð til keppni á Evrópumeistaramóti innandyra á árinu í Samsun Tyrklandi. Guðbjörg var í 5 sæti á EM 2022 og var því talin líkleg til verðlauna á mótinu. En því miður var EM aflýst þegar þjóðarsorg var lýst yfir í Tyrklandi vegna náttúruhamfara sem gengu yfir landið nokkrum dögum fyrir EM. Jarðskjálftahrina reið yfir landið, þar sem fleiri en 50.000 manns fórust og öllum viðburðum því aflýst í landinu.

Guðbjörg er skráð til keppni á EM innandyra 2024 í Króatíu og verður gaman að sjá hvort að hún endurtekur eða bætir fyrri árangur þar.

Samantekt af helsta árangri Guðbjargar á árinu 2023:

  • Íslandsmeistari innandyra (óháð kyni)
  • Íslandsmeistari kvenna utandyra
  • Íslandsbikarmeistari innandyra (óháð kyni)
  • 2 sæti á World Series Open heimslista berboga kvenna
  • Tvíbætti Íslandsmetið í meistaraflokki berboga kvenna

Guðbjörg lauk einnig þjálfarastigi 2 (WACL2)  á vegum alþjóðabogfimisambandsins World Archery á námskeiði sem BFSÍ skipulagði með styrk frá Ólympíusamhjálpinni.

Annað eldgosið í röð á vel heppnuðu þjálfaranámskeið Alþjóðabogfimisambandsins í samstarfi við Ólympíusamhjálpina, tólf þjálfarar nýjir World Archery Level 2 þjálfarar á Íslandi

Guðbjörg fylgdi einnig ungmennaliði BF Hróa Hattar á NM ungmenna sem náði góðum árangri.

Guðbjörg Reynisdóttir með sjötta Íslandsmeistaratitilinn utandyra í röð

Hér fyrir neðan er hægt að finna nokkrar fleiri fréttir um árangur Guðbjargar á árinu.

Guðbjörg Reynisdóttir með sjötta Íslandsmeistaratitilinn utandyra í röð

Guðbjörg Reynisdóttir með sjötta Íslandsmeistaratitilinn utandyra í röð

Guðbjörg Reynisdóttir með sjötta Íslandsmeistaratitilinn utandyra í röð

Guðbjörg Reynisdóttir með sjötta Íslandsmeistaratitilinn utandyra í röð

Formlega lýkur tímabili fyrir mót sem notuð eru til tölfræðilegs útreiknings 30 nóvember, en þar sem að síðasta mót sem gæti haft áhrif á tölfræðilega valið lauk 19 nóvember  var ákveðið að birta lokaniðurstöðurnar tölfræðinnar eins fljótt og mögulegt var.