Alfreð Birgisson Trissubogamaður ársins 2023

Alfreð Birgisson var valinn Trissubogamaður BFSÍ árið 2023. Þetta er annað árið í röð sem Alfreð hreppir titilinn. Valið fer fram á hlutlausann veg byggt á útreikningi árangurs keppenda á árinu á innlendum og erlendum mótum.

Bogfimifólk ársins eftir keppnisgreinum (BFSÍ)

Alfreð vann fyrstu formlegu Íslandsbikarmótaröð innandyra á vegum Bogfimisambands Íslands og hreppti því 50.000.kr verðlaunaféð. Bikarmótaröðin er kynlaus og því hörð samkeppni í henni. Sigurvegari er titlaður byggt á bestu þremur skorum keppenda úr Bikarmótum BFSÍ 2022-2023. Alfreð tók sigurinn með 1712 stig og var því titlaður fyrsti Íslandsbikarmeistari BFSÍ í trissuboga.

Alfreð vann báða Íslandsmeistaratitla trissuboga karla árið 2022. Árið 2023 vann Alfreð sig aftur upp í gull úrslitaleiki á Íslandsmeistaramóti utandyra og innandyra, en á báðum mótum voru gull úrslitaleikirnir hnífjafnir. Alfreð náði að verja Íslandsmeistaratitil sinn utandyra 136-135 en þurfti að sætta sig við silfrið innandyra í leik sem endaði 143-142. Það kom þó ekki að sök þar sem heildarframmistaða Alfreðs var nægileg til að tryggja honum Trissubogamaður árins 2023 annað árið í röð.

Alfreð var skráður til keppni á Evrópumeistaramóti innandyra í febrúar 2023 í Samsun Tyrklandi en hann lenti í 8 sæti með liðinu á EM 2022. En því miður var EM aflýst þegar þjóðarsorg var lýst yfir í Tyrklandi vegna náttúruhamfara sem gengu yfir landið nokkrum dögum fyrir EM. Jarðskjálftahrina reið yfir landið, þar sem fleiri en 50.000 manns fórust og öllum viðburðum því aflýst í landinu.

Alfreð keppti á HM utandyra í Berlín þar sem hann endaði í 39 sæti ásamt liði sínu. Alfreð stóð sig vel í opnu heimsmótaröð alþjóðabogfimisambandsins innandyra þar sem hann endaði í 40 sæti á World Series Open heimslista. Alfreð endaði einnig í 9 sæti ásamt liði sínu á Evrópubikarmóti utandyra í apríl í Bretlandi.

Alfreð var að ljúka keppni á JVD Open í Hollandi og World Series í Lúxemborg og er 26 sæti á World Series Elite heimslista þegar þetta er skrifað. En heimsmótaröðin 2023-2024 endar í janúar 2024 og þá verða loka úrslit ljós.

https://bogfimi.smugmug.com/HM-%C3%BAti-Berl%C3%ADn-2023/i-gf8gJzD/A

Alfreð er skráður til keppni á EM innandyra í Króatíu í febrúar 2024 og er áætlaður til keppni á EM utandyra í Þýskalandi í maí. Mögulegt er að hann taki þátt í fleiri landsliðsverkefnum ef tækifæri gefst til, en sem slökkviliðsmaður, ökukennari, þjálfari, fjölskyldumaður, einn af megin stoðum bogfimi á Akureyri og alt muglig mand, þá eru bara ákveðið margir dagar í hverju ári sem er mögulegt að eyða í æfingar og keppni 😉

Hér fyrir neðan er hægt að finna nokkrar fleiri fréttir um árangur Alfreðs á árinu.

Alfreð Birgisson bogfimimaður ársins 2022

Alfreð Birgisson bogfimimaður ársins 2022

Alfreð Birgisson bogfimimaður ársins 2022

Alfreð Birgisson bogfimimaður ársins 2022

Alfreð Birgisson bogfimimaður ársins 2022

Alfreð Birgisson bogfimimaður ársins 2022

Alfreð Birgisson bogfimimaður ársins 2022

Formlega lýkur tímabili fyrir mót sem notuð eru til tölfræðilegs útreiknings 30 nóvember, en þar sem að síðasta mót sem gæti haft áhrif á tölfræðilega valið lauk 19 nóvember  var ákveðið að birta lokaniðurstöðurnar tölfræðinnar eins fljótt og mögulegt var.