Freyja Dís Benediktsdóttir best kvenna og best allra á Íslandsmeistaramótinu

Freyja Dís Benediktsdóttir tók fyrsta og annan Íslandsmeistaratitil sinn í meistaraflokki trissuboga á Íslandsmeistaramótinu utandyra í bogfimi sem haldið var helgina 15-16 júlí á Hamranevelli í Hafnarfirði.

https://bogfimi.smugmug.com/%C3%8Dslandsmeistaram%C3%B3t-%C3%BAti-2023-Nationals-outdoor-2023/i-PKb7cZn/A

Freyja vann bæði titilinn í kvenna flokki og í kynlausum flokki (keppni óháða kyni). Slíkum Íslandsmeistaratitlum var bætt við árið 2023 m.a. til þess að gefa konum og körlum tækifæri að keppa sín á milli og svo að keppendur sem eru skráðir kynsegin hafi tækifæri á því að keppa um titla.

Viðbót Íslandmeta fyrir þriðju kynskráningu og formleg viðbót á Íslandsmeistaratitlum óháðum kyni

Freyja vann einnig Íslandsmeistaratitilinn í blandaðri liðakeppni ásamt liðsfélaga sínum úr BF Boganum Albert Ólafssyni.

https://bogfimi.smugmug.com/%C3%8Dslandsmeistaram%C3%B3t-%C3%BAti-2023-Nationals-outdoor-2023/i-w2LKgJZ/A

Hægt er að finna nánari upplýsingar um Íslandsmeistaramótið á vefsíðu Bogfimisambands Íslands

Sjö Íslandsmeistarar krýndir níu titlum á Íslandsmeistaramóti í Hafnarfirði