Natan Eir á EM ungmenna í 30 sæti einstaklinga og 7 sæti liða

Natan Eir Skov Jensen skemmti sér vel ásamt 376 íþróttamönnum frá 40 Evrópuþjóðum sem kepptu á Evrópumeistarmóti (EM) ungmenna í utandyra bogfimi sem haldið var í Róm Ítalíu 20-25 júlí.

Natan endaði í 32 sæti í einstaklingskeppni og 7 sæti í liðakeppni, og sló eitt landsliðsmet.

Einstaklingskeppni:

Natan endaði í 32 sæti í undankeppni einstaklinga með skorið 527 og mætti því sterkasta keppanda mótsins Simon Moritz frá Þýskalandi í 32 manna úrslitum, sem var í 1 sæti undankeppni EMU. Þar reyndist sá Þýski sterkari og sló Natan út 147-121 og Natan endaði því í 32 sæti í einstaklingskeppni.

Liðakeppni:

Í trissuboga U21 liðakeppni enduðu strákarnir okkar (Ragnar/Natan/Ísar) í 7 sæti í undankeppni EMU með 1786 stig sem er landsliðsmet, metið var áður 1743 stig.

Strákarnir okkar voru slegnir út í 8 manna úrslitum af Spáni sem var í 2 sæti í undankeppni EMU 226-208. Okkar strákar enduðu því í 7 sæti í liðakeppni á EMU

Nánari upplýsingar um EM ungmenna er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Ísland með verðlaun í fyrsta sinn á EM ungmenna utandyra, bæði silfur og brons í hús