Birkir Björnsson úr BF Boganum í Kópavogi keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og endaði í 13 sæti í einstaklingskeppni og 9 sæti í liðakeppni.
Útsláttarleikir einstaklinga
Birkir stóð sig vel í undankeppni NM ungmenna og endaði í 9 sæti með 616 stig í trissuboga karla U18.
Í 16 manna úrslitum mættust Birkir og Mikko Riippi frá Finnalandi sem var í 8 sæti í undankeppni NUM. Þar tók sá Finnski sigurinn 134-120 og Birkir endaði því í 13 sæti einstaklinga á NUM 2026
Útsláttarleikir liða
Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna. Birkir Björnsson og Sóldís Inga Gunnarsdóttir bæði úr BF Boganum enduðu saman í liði sem lið 2 frá Íslandi sem var í 8 sæti í undankeppni NM (hvert land má skipa mörgum liðum á NM).
Í 16 liða úrslitum mættu krakkarnir okkar liði Danmerkur sem var í 9 sæti í undankeppni NM. Ísland byrjaði með 5 stiga forskot eftir fyrstu umferð 37-32. Danir náðu að saxa á forskotið í annarri umferð 37-35 og staðan 72-69 fyrir Íslandi. Danir náðu að saxa 2 stig í viðbót í þriðju umferð 34-32 og Íslands leiddi því enn með einu stigi 104-103 og aðeins loka umferðin eftir. Þar var lukkan með Dönum sem tóku umferðina 37-34 og snéru leiknum við á síðustu stundu í 140-138 sigur fyrir Danmörku. Krakkarnir okkar enduðu því í 9 sæti í liðakeppni á NUM 2026.
Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.
Áfram Ísland!!

