Eva Kristín Sólmundsdóttir úr ÍF Akur á Akureyri keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og endaði í 9 sæti í einstaklingskeppni og 14 sæti í liðakeppni.
Útsláttarleikir einstaklinga
Eva stóð sig frábærlega í undankeppni NM ungmenna og endaði í 3 sæti með 571 stig af 32 keppendum!! í sveigboga kvenna U18 sem var fjölmennasta keppnisgrein NUM 2026. Mikið og djúpt talent þarna á ferðinni sem við munum vafalaust sjá ná miklum árangri í framtíðinni.
Í 32 manna úrslitum mættust Eva og Ellen Nguyen-Gelios frá Svíþjóð og úr varð spennandi leikur. Eva tók fyrstu lotuna 24-17 og Sænska aðra lotu 21-20, Eva tók svo næstu tvær lotur 22-8 og 23-20 og sigurinn í leiknum 6-2 og hélt því í 16 manna úrslit.
Í 16 manna úrslitum mættust Eva og Senni Koski frá Finnlandi sem var í 14 sæti í undankeppni NUM og úr varð spennandi leikur. Finnska vann fyrstu lotuna með einu stigi 27-26 og Eva svaraði í sömu mynt með því að taka aðra lotu 24-23 og staðan í leiknum jöfn 2-2. Finnska tók þriðju lotu með tveim stigum 29-27 og Eva svaraði aftur í sömu mynt og tók fjórðu lotu 26-24 og leikurinn aftur jafn 4-4 og aðeins ein lota eftir af leiknum sá sem vinnur lotuna heldur áfram í 8 manna úrslit, ef þær jafna er leikurinn jafn og þarf bráðabana (ein ör nær miðju vinnur) og stelpurnar jöfnuðu lotuna 26-26 og leikurinn því jafn 5-5. Bráðabani myndi ákvarða hver héldi áfram í 8 manna úrslit, þar skutu báðar stelpurnar 8 en ör Finnsku stelpunnar var eilítið nær miðju skífunnar og hún tók því sigurinn í bráðabana.
Eva endaði því hæst keppenda sem voru slegnir út í 16 manna úrslitum í 9 sæti. Svekkjandi hvað þetta var nálægt, Eva var að skjóta mjög flott í leiknum, þessi Finnska átti bara óvenjulega góðann leik og var svo heppnari í bráðbana, eins og getur gerst hjá öllum að eiga góðann dag og lélegann dag, Eva átti normal dag og Finnska átti frábærann dag þennan dag. Það er kannski ekki spurning um “hvort” að Eva muni vinna til verðlauna á NUM, heldur “hvenær” það mun gerast, af því að getustigið er til staðar, það þarf bara “rétta daginn”.
Útsláttarleikir liða
Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna og Eva endaði því með liðsfélaga sínum úr ÍF Akur Emmu Rakel Björnsdóttur í liði 1 frá Íslandi sem var í 16 sæti í undankeppni NM (hvert land má skipa mörgum liðum á NM).
Í fyrsta leik liða (24 liða úrslit) mættu stelpurnar liði 7 frá Finnlandi 17 sæti í undankeppni NM. Stelpurnar jöfnuðu fyrstu lotuna 25-25, unnu aðra lotuna 28-24, Finnarnir svöruðu með því að taka þriðju lotu 35-33 og leikurinn því jafn 3-3 og aðeins ein lota eftir af leiknum (það lið sem er fyrr að ná 5 stigum vinnur leikinn, 4 lotu leikur, 2 stig fyrir að vinna lotu, 1 stig fyrir að jafna lotu). Stelpurnar þurftu því að vinna síðustu lotuna ef lotan endaði jöfn yrði leikurinn jafn og þyrfti bráðbana. En stelpurnar náðu sigrinum í lotunni 23-17 og því í leiknum 5-3 og héldu því áfram í 16 liða úrslit.
Í 16 liða úrslitum mættu stelpurnar aðalliði Svíþjóðar sem var efst í undankeppni NM og talið sigurstranglegasta liðið á mótinu. Svíjarnir tóku fyrstu lotu 35-29, aðra lotu 34-20 og þriðju lotu 35-28 og gáfu í raun lítið færi á sér gegn stelpunum okkar. Svíjarnir tóku því sigurinn 6-0 og stelpurnar okkar enduðu í 14 sæti.
Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.
Áfram Ísland!!


