Dagur Ómarsson úr BF Hróa Hetti í Hafnarfirði keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og endaði í 4 sæti í einstaklingskeppni og 6 sæti í liðakeppni.
Útsláttarleikir einstaklinga
Dagur stóð sig glæsilega í undankeppni NM ungmenna og endaði í 3 sæti með 557 stig í berboga karla U18 og gott útlit fyrir að hann gæti endað á verðlaunapalli.
Í 8 manna úrslitum mættust Dagur og Eirik Mathias Arnesen frá Noregi sem var í 6 sæti undankeppni NM. Dagur vann fyrstu lotuna 22-16 og strákarnir jöfnuðu aðra lotu 21-21 og Dagur leiddi því leikinn 3-1. Dagur vann svo þriðju lotu 22-17 og fjórðu lotu 24-22 og tók því nokkuð öruggann sigur 7-1 og hélt áfram í undan úrslit.
Í undanúrslitum mættust Dagur og Eskil Ingebrigtsen frá Danmörku sem var í öðru sæti í undankeppni NM. Daninn reyndist þó sterkari og tók fyrstu þrjár loturnar 25-21, 27-16, 21-16 og tók því sigurinn 6-0. Dagur hélt því í brons úrslitaleikinn.
Í brons úrslitum mættust Dagur og Elis Karlsson frá Svíþjóð sem var í 4 sæti í undankeppni NM (aðeins 2 stig skyldu þá að í undankeppni 557-555 og því ljóst að þeir væru mjög jafnir). Lukkan lék þó ekki við Dag í þetta skiptið, þar sem að Svíjinn reyndist sterkari og tók fyrstu þrjár lotur leiksins 25-19, 25-22, 25-15 og 6-0 sigur í brons úrslitaleiknum. Dagur endaði því í 4 sæti á NM ungmenna 2026
Útsláttarleikir liða
Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna. Dagur Ómarsson úr BF Hróa Hetti og Auður Alma Viktorsdóttir úr SkotÍs Ísafirði enduðu saman í liði sem lið 1 frá Íslandi sem var í 7 sæti í undankeppni NM (hvert land má skipa mörgum liðum á NM).
Í 16 liða úrslitum mættu krakkarnir okkar liði 2 frá Noregi sem var í 10 sæti í undankeppni NM. Þar tóku krakkarnir okkar glæsilegann sigur, fyrstu lotu 25-20, annarri lotu 25-22, þriðju lotu 28-12 og 6-0 sigur í leiknum. Þau héldu því áfram í 8 liða úrslit NUM.
Í 8 liða úrslitum mættu krakkarnir okkar liði 2 frá Svíþjóð sem var í öðru sæti undankeppni NM (já Svíjar áttu 3 sterkustu liðin á NM, enda hryllilega sterk berbogaþjóð. Þegar að heimsmetum í berboga var bætt við á heimsþinginu 2021 djókaði framkvæmdastjóri heimssambandsins upp í pontu að “það væri bara svo Svíjarnir gætu fengið þau”). Krakkarnir okkar áttu því fjall að klífa gegn Svíjum í 8 liða úrslitum. Svíjar tóku fyrstu lotu 37-26, aðra lotu 30-20, en krakkarnir okkar náðu sér á strik í þriðju lotu með 28 stig, en það var ekki nóg gegn 31 stigi frá Svíjum sem tóku því sigurinn 6-0 og krakkarnir okkar enduðu í 6 sæti liða á NUM 2026
Gaman er að geta að lið 2 frá Svíþjóð sem sigraði krakkana okkar vann á endanum titilinn á mótinu, gegn Svíþjóð 1 sem tók silfur og Svíþjóð 3 tók að sjálfsögðu brons í liða
Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.
Áfram Ísland!!



