Eowyn í 8 sæti á World Series Open U21 heimslista

Eowyn Marie Mamalias sýndi glæsilega frammistöðu og þátttöku á innandyra tímabilinu í opnu heimsmótaröð alþjóða bogfimisambandsins World Archery. Eowyn endaði í 8 sæti í trissuboga kvenna U21 á World Series Open heimslista af rúmlega 50 keppendum alþjóðlega eftir að öllum mótum í mótaröðinni var lokið. Stig úr mótaröðinni giltu einnig til ranking í fullorðins flokki og þar endaði Eowyn í 70 sæti af rúmlega 700 keppendum.

World Series Open innandyra mótaröð alþjóða bogfimisambandsins World Archery samanstóð af 26 mótum um allan heim í vetur, frá byrjun nóvember og til lok febrúar.

Nánar er fjallað um World Series mótaröðina í frétt Bogfimisambands Íslands á bogfimi.is

17 Íslendingar í top 16 sætum á World Series Open heimslista 2023

Be the first to comment

Leave a Reply

Your email address will not be published.


*


Ert þú manneskja? * Time limit is exhausted. Please reload CAPTCHA.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.