Ragnar Smári í 2 sæti á World Series Open U21 heimslista

Ragnar Smári Jónasson sýndi glæsilega frammistöðu og þátttöku á innandyra tímabilinu í opnu heimsmótaröð alþjóða bogfimisambandsins World Archery. Ragnar endaði í 2 sæti! í trissuboga karla U21 á World Series Open heimslista af 76 keppendum alþjóðlega eftir að öllum mótum í mótaröðinni var lokið. Stig úr mótaröðinni giltu einnig til ranking í fullorðins flokki og þar endaði Ragnar í 58 sæti af rúmlega 2000 keppendum!

World Series Open innandyra mótaröð alþjóða bogfimisambandsins World Archery samanstóð af 26 mótum um allan heim í vetur, frá byrjun nóvember og til lok febrúar.

Nánar er fjallað um World Series mótaröðina í frétt Bogfimisambands Íslands á bogfimi.is

17 Íslendingar í top 16 sætum á World Series Open heimslista 2023

Be the first to comment

Leave a Reply

Your email address will not be published.


*


Ert þú manneskja? * Time limit is exhausted. Please reload CAPTCHA.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.