Elísabet Fjóla sæti 7 einstaklinga og 7 sæti liða á NM ungmenna

Elísabet Fjóla Björnsdóttir úr BF Boganum í Kópavogi keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og endaði í 7 sæti í einstaklingskeppni og 7 sæti í liðakeppni.

Útsláttarleikir einstaklinga

Elísabet Fjóla stóð sig frábærlega í undankeppni NM ungmenna og endaði í 4 sæti með 619 stig í trissuboga kvenna U18, sem er personal best hjá henni og aðeins 21 stigi frá lágmarksskorviðmiðum Evrópuleika í meistaraflokki. Þannig að það var útlit fyrir að Elísabet Fjóla gæti jafnvel komið á óvart og tekið einstaklings verðlaun á NM ungmenna í þetta sinn, enda búin að vera mikil framför hjá henni.

Elísabet Fjóla var nægilega hátt sett í undankeppni mótsins til að sitja hjá í 16 manna úrslitum og hélt því beint í 8 manna úrslit.

Í 8 manna úrslitum mættust Fjóla og Vilde Amalie Larsen frá Noregi sem var í 5 sæti í undankeppni NUM. Aðeins munaði 3 stigum á þeim í undankeppni NM og því ljóst að leikurinn yrði jafn og spennandi. Sú Norska byrjaði mjög vel með 28 stig á móti 24 stigum frá Fjólu og sú Norska náði svo að auka forskotið í annarri umferð 26-25 og staðan 54-49 og ekki gott útlit fyrir Fjólu í leiknum. En Fjóla náði að saxa forskotið niður um 2 stig í þriðju umferð 27-25 og staðan 79-76. Stelpurnar jöfnuðu svo fjórðu umferð 26-26 og staðan í leiknum 105-102. Fjóla þurfti því góða loka umferð til að reyna að jafna leikinn, en svo varð ekki í þetta sinn þar sem sú Norska skoraði 26 á móti 24 stigum frá Fjólu í síðustu umferðinni og leikurinn endaði því 131-126 og Fjóla endaði í 7 sæti á NM ungmenna 2026. Flott gert hjá Fjólu, en þegar andstæðingar eru jafnir á getustigi þá getur leikurinn farið á hvorn veginn sem er á þeim degi.

Útsláttarleikir liða

Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna (hvert land má skipa mörgum liðum á NM).

Í 16 liða úrslitum endaði leikurinn al Íslenskur þar sem lið 1 og lið 3 frá Íslandi mættust.

Bergur Freyr Geirsson og Eva María Einarsdóttir bæði úr BF Boganum enduðu saman í liði sem lið 3 frá Íslandi sem var í 12 sæti í undankeppni NM

Magnús Darri Markússon og Elísabet Fjóla Björnsdóttir bæði úr BF Boganum enduðu saman í liði sem lið 1 frá Íslandi sem var í 5 sæti í undankeppni NM

Þar tók lið 1 frá Íslandi sigurinn á móti liði 3 frá Íslandi 145-102. Ísland lið 3 (Bergur og Eva) enduðu því í 10 sæti í liðakeppni á NUM 2026. Það er ekki oft sem Ísland keppir við Ísland, þar sem það getur bara gerst á NUM.

Í 8 liða úrslitum mættust aðal lið Íslands (Magnús og Fjóla) og lið 2 frá Svíþjóð sem var í 4 sæti í undankeppni NM. Leikurinn var mjög spennandi. Svíjar byrjuðu 1 stigi yfir 37-36 eftir fyrstu umferð. Þau jöfnuðu aðra umferð 38-38 og Ísland náði svo forskoti Svíja til baka í þriðju umferð 31-30 og staðan í leiknum því jöfn 105-105 og aðeins ein umferð eftir af leiknum. Loka umferðin endaði 33-31 í vil Svíja og lokastaðan því Ísland 136 Svíþjóð 138. Krakkarnir okkar enduðu því í 7 sæti í liðakeppni á NM ungmenna 2026.

Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.

Ragnar, Þórdís og Lóa skara fram úr – Fjórir Norðurlandameistaratitlar og tvö Norðurlandamet á NM ungmenna

Áfram Ísland!!