Bergur Freyr Geirsson úr BF Boganum í Kópavogi keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og endaði í 7 sæti í einstaklingskeppni og 12 sæti í liðakeppni.
Útsláttarleikir einstaklinga
Bergur stóð sig mjög vel í undankeppni NM ungmenna og endaði í 11 sæti með 609 stig í trissuboga karla U18.
Í 16 manna úrslitum mættust Bergur og Jakob Bakkemo frá Noregi sem var í 6 sæti í undankeppni NUM. Leikurinn var mjög jafn og spennandi. Bergur byrjaði 3 stigum yfir í fyrstu umferð 28-25, en Normaðurinn náði mestu forskotinu til baka í annarri umferð 26-28 og náði svo forystunni í þriðju umferð 26-28 og staðan í leiknum 81-80 fyrir Norðmanninum. Strákarnir jöfnuðu fjórðu umferð 24-24 og aðeins ein umferð eftir að leiknum, þar náði Bergur að jafna leikinn með 24-23 umferð og srákarnir enduðu því jafnir 128-128. Því þurfti bráðabana til að ákvarða hvor þeirra héldi áfram í 8 manna úrslit (ein ör, hærra skor vinnur, ef jafnt skor þá vinnur sá sem hittir nær miðju). Báðir skutu og báðir hittu í 9, en nían hjá Bergi var nær og hann tók því sigurinn í bráðabananum og leiknum og hélt í 8 manna úrslit.
Í 8 manna úrslitum var bardaginn al Íslenskur, þar mættust Bergur Freyr Geirsson og Magnús Darri Markússon. Strákarnir byrjuðu jafnir 27-27, Magnús náði svo fullkominni umferð 30 stig á móti 27 frá Berg og tók því þriggja stiga forystu 57-54. Bergur náði að saxa á forskotið í þriðju umferð 27-26 og staðan 83-81 fyrir Magnúsi. Magnús náði að auka forskotið aftur í fjórðu umferð 29-28 og tók svo sigurinn í síðustu umferðinni 27-25. Lokastaðan 139-134 Magnús hélt í undanúrslit og Bergur endaði í 7 sæti í einstaklingskeppni á NUM 2026.
Útsláttarleikir liða
Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna (hvert land má skipa mörgum liðum á NM).
Í 16 liða úrslitum endaði leikurinn al Íslenskur þar sem lið 1 og lið 3 frá Íslandi mættust.
Bergur Freyr Geirsson og Eva María Einarsdóttir bæði úr BF Boganum enduðu saman í liði sem lið 3 frá Íslandi sem var í 12 sæti í undankeppni NM
Magnús Darri Markússon og Elísabet Fjóla Björnsdóttir bæði úr BF Boganum enduðu saman í liði sem lið 1 frá Íslandi sem var í 5 sæti í undankeppni NM
Þar tók lið 1 frá Íslandi sigurinn á móti liði 3 frá Íslandi 145-102. Ísland lið 3 (Bergur og Eva) enduðu því í 10 sæti í liðakeppni á NUM 2026. Það er ekki oft sem Ísland keppir við Ísland, þar sem það getur bara gerst á NUM.
Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.
Áfram Ísland!!

