Axel Leví í 21 sæti einstaklinga og 8 sæti liða á sínu fyrsta NM ungmenna

Axel Leví Marteinsson úr SkotÍs á Ísafirði keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og endaði í 21 sæti í einstaklingskeppni og 8 sæti í liðakeppni.

Útsláttarleikir einstaklinga

Axel endaði í 20 sæti í undankeppni NUM í sveigboga U18 karla með 349 stig.

Í 32 manna úrslitum mættust Axel og Daniel Rokka frá Finnlandi og úr varð spennandi leikur.

Finnski tók fyrstu lotu 20-13, Axel tók aðra lotu 18-15 og strákarnir jöfnuðu þriðju lotu 16-16 og staðan því 3-3 í leiknum (2 stig fyrir að vinna lotu 1 stig fyrir að jafna). Finninn tók fjórðu lotun 26-18 og staðan 5-3 og aðeins ein lota eftir ef leiknum, sem Axel þurfti að vinna til að knýja fram jafntefli 5-5 og bráðabana. Axel stóð sig flott og náði að jafna lotun 18-18 þannig að þeir deildu stigunum fyrir lotuna þannig að Finninn vann leikinn 6-4. Svo nálægt en ekki nóg í þetta skiptið, samt flottur og spennandi leikur. Axel endaði því í 21 sæti einstaklinga á NM ungmenna

Útsláttarleikir liða

Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna og Axel endaði því með Elías Áka Hjaltasyni úr Kópavogi í öðru liði Íslands (hvert land má skipa mörgum liðum á NM). Þó að þeir hafi verið “annað liðið” frá Íslandi og verið í 22 sæti af 26 liðum í undankeppni þá sá það ekki á frammistöðunni þeirra.

Í fyrsta leik liða (24 liða úrslit) mættu þeir liði 3 frá Danmörku sem var í 11 sæti í undankeppni NM. Strákarnir töpuðu fyrstu lotunni 31-17, en eftir það kviknaði í strákunum og þeir unnu næstu 3 lotur í röð 33-24, 30-27, 28-20 og tóku því sigurinn í leiknum 6-2 og héldu áfram í 16 liða úrslit.

Í 16 liða úrslitum mættu strákarnir okkar liði 2 frá Svíþjóð sem var í 6 sæti í undankeppni NM og það var ansi spennandi leikur. Svíjarnir tóku fyrstu lotuna 33-26 og 2-0 forystu. Strákarnir okkar tóku lotu 2 31-27 og jöfnuðu leikinn 2-2. Svíjarnir tóku svo þriðju lotu 30-17 og staðan 4-2 (það lið sem er fyrr að ná 5 stigum vinnur leikinn, 4 lotu leikur, 2 stig fyrir að vinna lotu, 1 stig fyrir að jafna lotu). Strákarnir þurftu því nauðsynlega að vinna síðustu lotuna til að jafna leikinn og knýja fram bráðabana, og þeir náðu því með 25-23 lotu og jöfnuðu leikinn 4-4. Bráðabani (ein ör per íþróttamann, liðið sem skorar hærra vinnur) myndi því ákvarða hver væri í 8 liða úrslit. Þar komu strákarnir aftur á óvart og skutu 7 og 6 stig á móti 9 og 1 stig frá Svíþjóð 13-10, strákarnir unnu bráðabanann og héldu því í 8 liða úrslit.

Alveg ótrúlegur árangur hjá strákunum okkar að ná þetta langt umfram gengi þeirra í undankeppni gegn sterkari andstæðingum í hvert sinn. Eitthvað sem enginn hefði spáð fyrir mótið.

Í 8 manna úrslitum mættu strákarnir okkar liði 1 frá Finnlandi sem var í 3 sæti í undankeppni NM. Finnar tóku fyrstu lotu 32-25 og aðra lotu 32-19 og þriðju lotu 35-24 og tóku því sigurinn 6-0 og strákarnir okkar enduðu í 8 sæti í liðakeppni á NM ungmenna.

Samt sem áður vel af sér vikið og líklega “underdog” moment mótsins þegar að í stærsta flokkum á NM ungmenna (26 lið) liðið sem var í 22 sæti í undankeppni vann sig upp í 8 liða úrslit meðal þeirra bestu og enduðu hærra en aðallið Íslands sem var slegið út í 16 manna úrslitum. Þeir geta verið mjög stoltir af þessum árangri

Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.

Ragnar, Þórdís og Lóa skara fram úr – Fjórir Norðurlandameistaratitlar og tvö Norðurlandamet á NM ungmenna

Áfram Ísland!!