Natan Eir Skov Jensen úr BF Boganum í Kópavogi keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og endaði í 5 sæti í einstaklingskeppni og 6 sæti í liðakeppni.
Natan stóð sig fínt í undankeppni NM ungmenna og endaði í 6 sæti með 540 stig í trissuboga karla U21. Í 8 manna úrslitum mættust Natan og Leo Werner frá Svíþjóð sem var í 3 sæti í undankeppni NUM. Þar tók Svíjinn sigurinn 136-131 og sló Natan út sem endaði í 5 sæti.
Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.
Áfram Ísland!!
