Bogfimifélagið Hrói Höttur með 5 titla og jöfnuðu Íslandsmet

BF Hrói Höttur sýndi sterka frammistöðu á Íslandsmóti ungmenna um helgina og tók 5 Íslandsmeistaratitla ungmenna, 2 silfur og 4 brons verðlaun.

Íslandsmeistaratitlar í U-flokkum sem BF Hrói Höttur vann til á mótunum:

  • Gull sveigbogi U16 karla Dagur Logi Björgvinsson Rist
  • Gull trissubogi U18 kvenna Bríana Birta Ásmundardóttir
  • Gull trissuboga U18 blandaðri liðakeppni BF Hrói Höttur (Bríana Birta og Jóhannes Karl)
  • Gull trissubogi U21 kvenna Eowyn Marie Mamalias
  • Gull berbogi U21 karla Auðunn Andri Jóhannesson

Önnur verðlaun sem keppendur BF Hróa Hattar unnu til á mótunum:

  • Brons trissubogi U18 karla Jóhannes Karl Klein
  • Silfur berbogi U21 Auðunn Andri Jóhannesson (keppni óháð kyni)
  • Silfur trissubogi U16 karla Sævar Sindri Jóhannesson
  • Brons sveigbogi U16 karla Dagur Logi Björgvinsson Rist
  • Brons trissubogi U21 Eowyn Marie Mamalias (keppni óháð kyni)
  • Brons Trissubogi U21 blönduð liðakeppni BF Hrói Höttur (Eowyn Marie og Kaewmungkorn(Púká))

Eowyn Marie Mamalias jafnaði einnig Íslandsmetið í trissuboga U21 kvenna útsláttarkeppni með 145 stig í úrslita leik U21 trissuboga, Anna María Alfreðsdóttir úr ÍF Akur á það met sem stendur.

 

Íslandsmót ungmenna innanhúss 2023 var skipt niður í tvö mót sem haldin voru í Bogfimisetrinu. Íslandsmót U16/U18 sem haldið var á laugardeginum og Íslandsmót U21 sem haldið var á sunnudeginum. Samtals var keppnin sjálf lengri en 22 klukkutímar yfir þessa tvo daga, til viðbótar við tímann sem tekur að undirbúa og ganga frá. Því vildi BFSÍ koma sérstaklega á framfæri sínum þökkum til starfsfólks BFSÍ og öllum sjálfboðaliðum sem aðstoðuðu við hald mótsins fyrir vel heppnað mót sem gekk frábærlega í krefjandi aðstæðum.

Fjöldi keppenda á Íslandsmótum ungmenna er byrjaður að aukast aftur sem er jákvætt, en þátttaka er enn 9% lægri en var á síðasta Íslandsmóti ungmenna fyrir kórónuveirufaraldurinn. Það er því að taka aðeins lengri tíma en áætlað var að koma þátttöku aftur í jafnvægi og fjölgun keppenda. 40 keppendur kepptu á mótinu að þessu sinni. Niðurstöður mótsins voru birtar í úrslitabirtingakerfi alþjóðabogfimisambandsins ianseo og er hægt að finna á heimasíðu þeirra ianseo.net. Búið er að uppfæra niðurstöður og ranking lista í mótakerfi BFSÍ.

Sýnt var beint frá mótinu á Youtube rásinni Archery TV Iceland 

Niðurstöður mótsins er hægt að finna á úrslitabirtingakerfi alþjóðabogfimisambandsins ianseo  og í mótakerfi BFSÍ 

Mögulegt er að finna myndir af mótunum á smugmug

40 titlar veittir og 18 Íslandsmet slegin á Íslandsmótum ungmenna um helgina