Bríana Birta með tvo Íslandsmeistara titla í U18 trissuboga á sínu fyrsta móti

Bríana Birta Ásmundsdóttir var efst í undankeppni trissuboga kvenna U18 og tók tvo titla á sínu fyrsta Íslandsmóti ungmenna um helgina.

Bríana vann einstaklings titilinn í trissuboga kvenna U18 með yfirburðum í gull úrslitaleiknum 118-89 gegn Stella Wedholm, en þær voru báðar keppa á sínu fyrsta móti.

Bríana vann einnig gull verðlaunin í trissuboga U18 blandaðri liðakeppni ásamt liðsfélaga sínum Jóhannes Karl Klein. En svo vildi til að þau liðsfélagarnir mættust í brons úrslita leik trissuboga U18 unisex flokksins (keppni óháð kyni) en þar hafði Jóhannes betur 134-125.

Íslandsmót ungmenna innanhúss 2023 var skipt niður í tvö mót sem haldin voru í Bogfimisetrinu. Íslandsmót U16/U18 sem haldið var á laugardeginum og Íslandsmót U21 sem haldið var á sunnudeginum. Samtals var keppnin sjálf lengri en 22 klukkutímar yfir þessa tvo daga, til viðbótar við tímann sem tekur að undirbúa og ganga frá. Því vildi BFSÍ koma sérstaklega á framfæri sínum þökkum til starfsfólks BFSÍ og öllum sjálfboðaliðum sem aðstoðuðu við hald mótsins fyrir vel heppnað mót sem gekk frábærlega í krefjandi aðstæðum.

Fjöldi keppenda á Íslandsmótum ungmenna er byrjaður að aukast aftur sem er jákvætt, en þátttaka er enn 9% lægri en var á síðasta Íslandsmóti ungmenna fyrir kórónuveirufaraldurinn. Það er því að taka aðeins lengri tíma en áætlað var að koma þátttöku aftur í jafnvægi og fjölgun keppenda. 40 keppendur kepptu á mótinu að þessu sinni. Niðurstöður mótsins voru birtar í úrslitabirtingakerfi alþjóðabogfimisambandsins ianseo og er hægt að finna á heimasíðu þeirra ianseo.net. Búið er að uppfæra niðurstöður og ranking lista í mótakerfi BFSÍ.

Sýnt var beint frá mótinu á Youtube rásinni Archery TV Iceland 

Niðurstöður mótsins er hægt að finna á úrslitabirtingakerfi alþjóðabogfimisambandsins ianseo  og í mótakerfi BFSÍ 

Mögulegt er að finna myndir af mótunum á smugmug

40 titlar veittir og 18 Íslandsmet slegin á Íslandsmótum ungmenna um helgina