![Auðunn að skoða örvar NUM 2022](https://i0.wp.com/archery.is/prufa/wp-content/uploads/2022/07/Audunn-ad-skoda-orvar-NUM-2022.jpg?resize=678%2C381&ssl=1)
Auðunn Andri Jóhannesson úr BF Hróa Hetti í Hafnarfirði hreppti tvö verðlaun á Norðurlandameistaramóti ungmenna (NUM) 2022 í Kemi Finnlandi síðustu helgi.
Auðunn var í þriðja sæti í undankeppni berboga karla U18 og keppti á móti Simon Fischer frá Svíþjóð í undanúrslitum. Þar fóru leikar 6-0 fyrir þeim Sænska og Auðunn tók bronsið. Í liðakeppni keppti Auðunn ásamt Hebu Róbertsdóttir og Viktoríu Fönn Guðmundsdóttir gegn liði Svíþjóðar, þar hafði Svíþjóð einnig betur og Auðunn og liðsfélagar hrepptu bronsið á mótinu í liðakeppni.
Frekari fréttir af Norðurlandameistarmóti Ungmenna 2022 er hægt að finna á archery.is.