Viktoría Fönn Guðmundsdóttir með silfur og brons á Norðurlandameistarmótinu 2022

Viktoría Fönn Guðmundsdóttir í ÍF Akur á Akureyri hreppti tvö verðlaun á Norðurlandameistaramóti ungmenna (NUM) 2022 í Kemi Finnlandi síðustu helgi.

Viktoría var í öðru sæti í undankeppni berboga kvenna U21 og keppti á móti Julia Wilhelmsson frá Svíþjóð í gull úrslitaleiknum. Þar fóru leikar 6-0 fyrir þeirri Sænsku og Viktoría tók silfrið. Í liðakeppni keppti Viktoría ásamt Hebu Róbertsdóttir og Auðunn Andra Jóhannessyni gegn liði Svíþjóðar, þar hafði Svíþjóð einnig betur og Viktoría og liðsfélagar hrepptu bronsið á mótinu í liðakeppni.

Frekari fréttir af Norðurlandameistarmóti Ungmenna 2022 er hægt að finna á archery.is.