Anna tók Íslandsmeistaratitilinn með yfirburðum um helgina á Íslandsmeistaramótinu utandyra 2022

Anna María Alfreðsdóttir úr ÍF Akur á Akureyri vann annan Íslandsmeistaratitilinn í röð í trissuboga kvenna á Íslandsmeistaramótinu í bogfimi á laugardaginn síðastliðinn í bjáluðu veðri. Anna mætti í úrslitum Ewa Ploszaj úr BF Boganum í Kópavogi þar sem Anna vann öruggann sigur 139-112. Anna og Ewa hafa verið að skiptast á að taka Íslandsmeistaratitlana í trissuboga kvenna utandyra á síðustu fjórum árum. En Anna er búin að vinna báða Íslandsmeistaratitlana í markbogfimi á þessu ári (innandyra og utandyra).

Freyja Dís Benediktsdóttir úr BF Boganum í Kópavogi vann brons úrslitaleikinn af miklu öryggi 126-88 gegn Astrid Daxböck úr sama félagi.

Anna vann einnig Íslandsmeistaratitilinn í parakeppni ásamt liðsfélaga sínum Þorsteini Halldórssyni. Verðlaunin voru afhent byggt á niðurstöðum úr undankeppni mótsins þar sem skera þurfti liða útsláttarkeppni mótsins út til að koma skipulaginu fyrir vegna tafa sem gerðust vegna veður aðstæðna.

Ný óformlega viðbóta var á Íslandsmeistaramótinu í þetta sinn, kynlaus (unisex) keppni. Þessari viðbót var bætt við til að kanna möguleika á því að greiða aðgengi kynsegin einstaklinga að geta tekið þátt á Íslandsmeistaramótum í non-binary flokki og til þess að skapa tækifæri á Íslandsmeistaramótum fyrir keppni milli karla og kvenna. Einn kynsegin einstaklingur keppti í berboga á mótinu. Anna og Þorsteinn mættust í úrslitum kynlausu keppninnar en þar hafði Þorsteinn einu stigi betur 129-128 og Anna fékk því silfur. Arnar Sveinsson úr UMF Tindastól tók bronsið í kynlausu keppninni með naumum sigri 121-120 gegn Ewa Plosaj úr BF Boganum.

Íslandsmeistarar kvenna

 

Íslandsmeistaramótið var haldið á Hamranesvelli í Hafnarfirði 9-10 júlí. Veðrið á laugardeginum þegar að trissuboga og berboga flokkar kepptu var með því versta sem sést hefur á móti á Íslandi. Stormur og rigning fyrri part dagsins sem skánaði seinni partinn. Öll skotmörkin fuku niður í æfingaumferðum og það brotnuðu örvar hjá nokkrum keppendum.

Undankeppni trissuboga og berboga var frestað svo að mögulegt væri að festa skotmörkin almennilega og bjarga þeim keppendum um örvar sem vantaði örvar upp á. Það orsakaði mikla tímatöf í skipulagi mótsins sem var þegar þétt setið. Ekki var mögulegt að fresta mótinu til sunnudags þar sem ekki allir keppendur komust á þeim degi og búið var að auglýsa mótið á laugardeginum. Til að koma því fyrir að mótið gæti verið haldið var undankeppni stytt í 3 umferðir í stað 12 og tíminn til að skjóta örvunum var lengdur til að gefa keppendum færi á því að geta skotið örvunum. Sem betur fer lægði lítillega seinni hluta dags þegar að úrslitaleikirnir voru í trissuboga og berboga. Til samanburðar við storminn á laugardeginum var veðrið var frábært á sunnudeginum þegar að sveigbogaflokkar kepptu, en þó samt einhver vindur og rigning sem setti strik í skorin.