Anna María í 1 sæti á U21 World Series Open heimslista og 24 sæti á lista fullorðinna

Anna María Alfreðsdóttir átti frábært innandyra tímabil í opnu heimsmótaröð alþjóða bogfimisambandsins World Archery. Anna endaði í 1 sæti í trissuboga kvenna U21 af 51 keppanda og 24 sæti trissuboga kvenna (fullorðins flokki) af rúmlega 700 keppendum á World Series Open heimslista eftir að öllum mótum í mótaröðinni var lokið.

World Series Open innandyra mótaröð alþjóða bogfimisambandsins World Archery samanstóð af 26 mótum um allan heim í vetur, frá byrjun nóvember og til lok febrúar.

Nánar er fjallað um World Series mótaröðina í frétt Bogfimisambands Íslands á bogfimi.is

17 Íslendingar í top 16 sætum á World Series Open heimslista 2023