Alfreð Birgisson í 40 sæti af rúmlega 2000 keppendum á World Series Open innandyra heimslista

Alfreð Birgisson keppti í opnu heimsmótaröð alþjóða bogfimisambandsins í vetur í trissuboga karla. Mest þátttaka var í trissuboga karla af öllum keppnisgreinum með rúmlega 2000 keppendur á heimslistanum og Alfreð situr þar í 40 sæti á World Series Open heimslista eftir að öllum mótum er lokið.

World Series Open innandyra mótaröð alþjóða bogfimisambandsins World Archery samanstóð af 26 mótum um allan heim í vetur, frá byrjun nóvember og til lok febrúar.

Nánar er fjallað um World Series mótaröðina í frétt Bogfimisambands Íslands á bogfimi.is

17 Íslendingar í top 16 sætum á World Series Open heimslista 2023