Sveinn Sveinbjörnsson í 5 sæti á World Series Open innandyra heimslista

Sveinn Sveinbjörnsson átti glæsilegt innandyra tímabil í opnu heimsmótaröð alþjóða bogfimisambandsins World Archery. Sveinn endaði í 5 sæti í berboga karla á World Series Open heimslista af rúmlega 373 keppendum alþjóðlega eftir að öllum mótum í mótaröðinni var lokið.

World Series Open innandyra mótaröð alþjóða bogfimisambandsins World Archery samanstóð af 26 mótum um allan heim í vetur, frá byrjun nóvember og til lok febrúar.

Nánar er fjallað um World Series mótaröðina í frétt Bogfimisambands Íslands á bogfimi.is

17 Íslendingar í top 16 sætum á World Series Open heimslista 2023